Mjög góður árangur hjá ungum ökumönnum í SAGA ökuritaverkefni VÍS 22. október 2005 00:01
Mjög góður árangur náðist í SAGA ökuritaverkefni Vátryggingafélags Íslands fyrir unga ökumenn sem er nýlokið. Er meðaleinkunn unga fólksins ríflega helmingi betri en hjá öðrum, sem notað hafa ökuritann reglulega. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra afhenti þremur stigahæstu ungmennunum verðlaun og viðurkenningu frá VÍS þegar greint var frá niðurstöðum verkefnisins í dag. Um var að ræða nokkurs konar góðaksturskeppni þar sem Tinna Guðrún Lúðvíksdóttir, 18 ára, úr Vogum á Vatnsleysuströnd stóð sig best. Hún hreppti að launum ferð í ökuskóla BMW í Þýskalandi. Stefán Smári Jónsson, 17 ára, frá Egilsstöðum varð í öðru sæti og Hrannar Freyr Hallgrímsson, 19 ára, úr Kópavogi í því þriðja. "Niðurstaðan er mjög góð í heildina og fór fram úr björtustu vonum okkar," segir Ragnheiður Davíðsdóttir, forvarnar- og öryggismálafulltrúi VÍS. "Meðaleinkunn unga fólksins í verkefninu var 0,1 en meðaleinkunn annarra hópa sem nota Saga-ökuritann er á bilinu 0,2-0,3, þannig að árangur ungu krakkanna er meira en helmingi betri." Alls sóttu um 100 ungmenni um að fá að taka þátt í SAGA ökuritaverkefninu og voru 18 þátttakendur valdir úr hópnum eftir aldri, kynjahlutfalli og búsetu. Alls 15 luku verkefninu. SAGA ökuritinn, sem er hannaður og smíðaður af ND á Íslandi, skráir nákvæmlega akstursleiðir og ökuhraða og sýnir hvar og hvenær er farið yfir hámarkshraða eða gefið snöggt í, hemlað harkalega eða farið glannaleg í beygjur. Ökuritanum var komið fyrir í bílum ungmennanna og síðan fylgst nákvæmlega með akstri þeirra í þrjá mánuði, frá 15. júlí til 15. október. Samtals ók unga fólkið um 63 þúsund kílómetra á tímabilinu og tók aksturinn samanlagt 1.449 klukkustundir og 41 mínútu. Vegalengdin sem hver þátttakandi ók var þó mjög misjöfn eða frá 1.240 km upp í rétt tæpa 8.000 km. Þrátt fyrir misjafnt aksturslag fór helmingur hópsins aldrei upp fyrir 100 km hraða á klst. en fyrrnefndir þrír ökumenn þóttu þó skara fram úr hvað varðar gott aksturslag. "Við erum afskaplega ánægð með árangur þeirra en það sem skiptir þó mestu máli er að allir þátttakendurnir hafa með þessu öðlast góða og haldbæra reynslu af fyrirmyndaraksturslagi, sem þeir vonandi tileinka sér um alla framtíð." segir Ragnheiður Davíðsdóttir.
Innlent Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira