Kennurunum settir afarkostir 8. júní 2005 00:01
Nokkrir kennarar Landakotsskóla fengu í gær bréf frá skólastjórn Landakotsskóla. Í bréfinu kemur fram að þeir sem hafi hug á því að starfa áfram við skólann þurfi að skrifa undir stuðningsyfirlýsingu við stjórn hans. "Starfið felur að sjálfsögðu í sér viðurkenningu á nýkjörinni stjórn Landakotsskóla," segir í bréfinu sem undirritað er af Margréti Halldórsdóttur og Irenu Kojic sem hefur verið falið að fara með starfsmannamál skólans meðan leitað er nýs skólastjóra. Einn kennaranna sem fékk slíkt bréf sent kveðst ekki ætla að skrifa undir yfirlýsinguna. Hann segist hafa leitað álits lögfræðings sem sagt hafi að ólöglegt sé að beita slíkum aðferðum. Fleiri kennarar Landakotsskóla taka í svipaðan streng samkvæmt heimildum blaðsins. Irena Kojic formaður kennararáðs segir að flestir kennarar skólans hafi lýst því yfir að þeir vilji starfa áfram við skólann. Deilendur í málinu skiptast í tvær fylkingar. Annars vegar er það skólastjórn og kennararáð og hins vegar hluti kennaraliðsins sem styður Hjalta Þorkelsson, fráfarandi skólastjóra. Kennararnir segja að kennararáð starfi ekki í umboði kennara þar sem vantraustsyfirlýsing á kennararáðið hafi verið samþykkt einróma þann 1. mars. Ástæðan fyrir því var meint níð kennararáðs um Hjalta Þorkelsson, Bessí Jóhannsdóttur, aðstoðarskólastjóra, og nokkra nafngreinda kennara við skólann. Bessí var sagt upp af skólanefnd í maí og skólastjóri sagði af sér síðastliðinn föstudag því hann taldi skólastjórn hafa farið inn á valdsvið sitt með uppsögn Bessíar. Foreldrar barna við skólann ætla að funda með stjórninni í kvöld. "Við erum með yfirlýsingu tilbúna þar sem við förum þess á leit við stjórnina að hún segi af sér," segir Edda Björgvinsdóttir, sem á barn í Landakotsskóla. Giovanni Tonucci, erkibiskup og sendiherra páfastóls á Norðurlöndum, veit af ástandinu í Landakotsskóla en vildi ekki tjá sig um málið og vísaði á kaþólska biskupinn yfir Íslandi, Jóhannes Gjisen. Biskup sagðist ekkert hafa með málið að gera og vísaði á skólastjórn.
Fréttir Innlent Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Sjá meira