Innlent

Kjartan stopp í Reykjafirði í gær

Kjartan Jakob Hauksson ákvað að halda kyrru fyrir í Reykjafirði í fyrrinótt og í gær vegna hvassviðris. Í mestu hviðunum fór vindurinn upp í 20 m/s. "Veðrið er að detta niður," sagði Kjartan þegar Fréttablaðið náði tali af honum í gærkvöldi. Hann gerði ráð fyrir því að komast aftur af stað í nótt eða nú í morgunsárið. "Það spáir hæglætisveðri næstu daga." Kjartan hefur haft ofan af fyrir sér í Reykjavík síðustu daga með því að leggja silunganet og eltast við tófur. Hann var í sveit í Reykjafirði sem barn og hefur kunnað vel við sig á æskuslóðunum þótt veðurtepptur sé. Tilgangur ferðalagsins er að styrkja Sjálfsbjörgu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×