Innlent

Snjóframleiðsla hefst næsta haust

Skíðafélag Dalvíkur stefnir á að hefja snjóframleiðslu í Böggvisstaðafjalli í haust. Kostnaðurinn er talinn vera um 21 milljón króna og segir Óskar Óskarsson, formaður félagsins, að fjármögnun gangi vonum framar. „Við erum að leita eftir framlögum frá aðilum innan og utan bæjarins og höfum nú þegar fengið loforð fyrir meira en helmingnum af kostnaðinum. Því verður varla til baka snúið," segir Óskar. Vegna snjóleysis hefur gengið erfiðlega að halda skíðasvæðunum á Norðurlandi opnum undanfarna vetur. Snjóframleiðsla hefst í Hlíðarfjalli við Akureyri í haust og mun Vetraríþróttamiðstöð Íslands fjármagna kaup á snjóframleiðslukerfi sem kostar um 80 miljónir króna. Óskar segir að skíðasvæði Dalvíkinga sé smærra í sniðum og því sé kostnaðurinn við snjóframleiðslu þar minni en í Hlíðarfjalli. „Ákvörðun um snjóframleiðslu í Hlíðarfjalli ýtti við okkur og það er ljóst að við höfum ekki hug á að sitja eftir með sárt ennið: mannvirki í fjallinu upp á tugi milljóna króna en engan snjó," segir Óskar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×