Kennurum settir afarkostir 8. júní 2005 00:01
Sumir kennarar Landakotsskóla fengu í gær bréf sem skrifað var í umboði skólastjórnar Landakotsskóla. Í bréfinu kemur fram að þeir sem hafi hug á því að starfa áfram við skólann þurfi að skrifa undir stuðningsyfirlýsingu við stjórn hans. "Starfið felur að sjálfsögðu í sér viðurkenningu á nýkjörinni stjórn Landakotsskóla," segir í bréfinu sem undirritað er af Margréti Halldórsdóttur og Írenu Kojic sem hefur verið falið að fara með starfsmannamál skólans meðan leitað er að nýjum skólastjóra. Einn af kennurunum sem fékk slíkt bréf í hendur segist ekki ætla að skrifa undir yfirlýsinguna. Hann segist hafa leitað álits lögfræðings sem sagt hafi að það sé ólöglegt að beita slíkum aðferðum. Fleiri kennarar Landakotsskóla ætla ekki að skrifa undir yfirlýsinguna samkvæmt heimildum. Í samtali við Fréttablaðið sagði Írena Kojic formaður kennararáðs að flestir kennarar skólans hefðu lýst því yfir að þeir vildu starfa áfram í skólanum. Deiluaðilar í málinu skiptast í tvær fylkingar, annars vegar er það skólastjórn og kennararáð og hins vegar hluti kennaraliðsins sem styður fráfarandi skólastjóra Hjalta Þorkelsson. Kennararnir segja að kennararáð starfi ekki í umboði kennara þar sem vantraustsyfirlýsing á kennararáðið hafi verið samþykkt einróma þann 1. mars. Ástæðan fyrir því var meint níð kennararáðs um skólastjóra Landakotsskóla Hjalta Þorkelsson, aðstoðarskólastjóra Bessí Jóhannsdóttur og nokkra nafngreinda kennara við skólann. Aðstoðarskólastjóra var sagt upp af skólanefnd í maí og skólastjóri sagði af sér síðastliðinn föstudag því hann taldi skólastjórn hafa farið inn á valdsvið sitt með uppsögn aðstoðarskólastjóra. "Við förum á á fund með stjórninni klukkan átta í kvöld. Við erum með yfirlýsingu tilbúna þar sem við förum þess á leit við stjórnina að hún segi af sér," segir Edda Björgvinsdóttir sem á barn í Landakotsskóla um fyrirhugaðan fund foreldra með stjórn skólans. Giovanni Tonucci sendiherra páfastóls á Norðurlöndum veit af ástandinu í Landakotsskóla en vildi ekki tjá sig um málið og vísaði á kaþólska biskupinn yfir Íslandi Matthías Gjisen. Biskup sagðist ekkert hafa með málið að gera og vísaði á skólastjórn.
Fréttir Innlent Mest lesið „Augljóst að stjórnarandstöðunni hefur gjörsamlega mistekist“ Innlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar Innlent Bryndís vill íslenska hermenn á blað Innlent „Ég mun standa með mínum ráðherra“ Innlent Hafnaði öllum kröfum Ásthildar Lóu nema einni Innlent Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Erlent Umbóta þörf til að halda uppi lífsgæðum á Íslandi að mati OECD Innlent Hvar er Khamenei? Erlent Fleiri fréttir Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Sjá meira