Fundað vegna þorskstofns 21. apríl 2005 00:01
Þorskkvótinn verður ekki aukinn á næstunni. Sjávarútvegsráðherra segir ástand stofnsins lélegt. Fulltrúar sjávarútvegsnefndar Alþingis eiga á morgun fund með forstjóra Hafrannsóknarstofnunar vegna málsins. Samkvæmt nýlegri mælingu Hafrannsóknarstofnunarinnar lækkaði stofnvísitala þorsks um 16 prósent frá mælingu sem gerð var í fyrra. Svokallaðar lengdardreifingar þorsksins sýndu að árgangurinn 2004 væri mjög lélegur, árgangurinn 2003 frekar lélegur og árgangurinn 2001 mjög lélegur. Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra segist hafa viljað sjá betri útkomu en bendir á að mældir hafi verið fleiri árgangar en séu inni í veiðistofninum. Hins vegar staðfesti mælingin líka að árgangurinn 2001 sé mjög lítill og það þýði að kvótinn verði ekki aukinn alveg á næstunni. Of snemmt sé þó að segja til um hvort minnka þurfi kvótann á næsta ári en inn í það komi fleiri þættir. Magnús Þór Hafsteinsson, Frjálslynda flokknum, telur þetta slæmar fréttir af þorskinum og krefst neyðarfundar í sjávarútvegsnefnd Alþingis. Guðjón Hjörleifsson, formaður nefndarinnar, segir að ákveðið hafi verið að fulltrúar meirihlutans og minnihlutans í nefndinni fundi með Jóhanni Sigurjónssyni, forstjóra Hafrannsóknarstofnunarinnar, á morgun og verði farið yfir málið og staðan metin í framhaldi af því.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Innlent Fleiri fréttir Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Sjá meira