Innlent

Kalt en þurrt í maí

Veður í maí var heldur óvenjulegt. Það var óvenjuþurrt og sólríkt um meginhluta landsins og lengst af fremur svalt og næturfrost viðloðandi. Meðalhiti í Reykjavík var 5,7 stig og er það 0,6 stigum undir meðallagi. Óvenjulítil úrkoma var í Reykjavík í mánuðinum, ekki nema rétt um þriðjungur af því sem er í meðalári. Sólarstundir voru að sama skapi óvenju margar, 317 sólarstundir mældust í mánuðinum, sem er nær tvöfalt það sem venjulegt er.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×