Átökin um Austurvöll 2. júní 2005 00:01
Fjörlegar umræður hafa spunnist um ljósmyndasýningarhald á Austurvelli í kjölfar bréfs Halldórs Blöndal, forseta Alþingis, til Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra en í því fer hann fram á að borgin láti af sýningarhaldi á Austurvelli enda finnist honum óviðeigandi að völlurinn sé notaður með þessum hætti. Margir eru ósammála Halldóri en segja engu að síður að lítil prýði sé af steinstöplunum sem ljósmyndirnar hvíla á. Skemmst er frá því að segja að borgaryfirvöld hyggjast virða erindi þingforsetans að vettugi og hefst sýning á ljósmyndum Ragnars Axelssonar 24. júní. Ráðamenn Reykjavíkur eru vitaskuld í fullum rétti þegar þeir ákveða hvernig Austurvöllur skuli notaður en engu að síður er eðlilegt að starfsmenn nærliggjandi húsa hafi ríka skoðun á því sem þar fer fram. Ásdís Sigurðardóttir vinnur á Thorvaldsen og er hrifin af sýningunum. "Mér finnst þetta æðislegt. Austurvöllur er frábær staður og mér finnst frábært að eitthvað svona sniðugt sé gert hérna því þetta lífgar upp á miðbæinn." Hún telur Austurvöll alls ekki vanvirtan með sýningarhaldinu og telur grasið ekki fara illa þótt fólk spígspori um það og skoði myndirnar. Sonja Magnúsdóttir starfar í móttökunni á Hótel Borg í sumar. "Fyrir ferðamenn er þetta örugglega mjög skemmtilegt," segir hún en það eru helst útlendingar sem dvelja á hótelinu. Líklegt verður að telja að flestir þeirra leggi leið sína yfir Pósthússtrætið og berji myndirnar augum. "Mér finnst í fínu lagi að á Austurvelli sé annað slagið eitthvað að sjá fyrir landsmenn og erlenda ferðamenn en það má ekki ofgera því," segir Sonja sem þó hefur smá áhyggjur af grasinu. Séra Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur er á báðum áttum í málinu en tekur skýrt fram að hann sé feginn því hvað borgin hefur lifnað yfir sumarið. "Ég er mjög glaður yfir þeirri list sem þarna hefur verið sýnd undanfarin ár og vænti einnig góðs af listinni nú í sumar. En ég neita því ekki að mér finnst steinsteypan dálítið mikil og velti fyrir mér hvort ekki sé skynsamlegra, að minnsta kosti stundum, að fara með allt þetta grjót á Ingólfstorg, þar er grjót hvort eð er."
Fréttir Innlent Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls Innlent Fleiri fréttir Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Sjá meira