Innlent

Fimm sinnum dýrara eftirlit

Það er fimm sinnum dýrara að hafa eftirlit með byggingavöruverslun á Suðurnesjum en á Vesturlandi. Samtök atvinnulífsins segja augljóst að gjöldin endurspegli ekki kostnað við heilbrigðiseftirlit og krefjast breytinga. Í athugun sem Samtök atvinnulífsins hafa gert á kostnaði við heilbrigðiseftirlit í sveitarfélögum landsins kemur fram að afar mismunandi er hversu eftirlitsgjöldin eru há. Þeir sem reka mjólkurbú á Norðurlandi vestra þurfa til dæmis að punga út 374.000 krónum á ári fyrir heilbrigðiseftirlit en mjólkurbú á Austurlandi er rukkað um 65.000 krónur. Munurinn er rúm 470%. Þetta eru atvinnurekendur ósáttir við. Pétur Reimarsson, verkefnastjóri SA, segir þetta algjörlega óeðlilegt. Hann bendir á að sveitarfélögin hafi algert sjálfdæmi um verðið sem sett er upp, auk þess sem þau reki mörg fyrirtæki sem þau hafi síðan eftirlit með sjálf. SA vill að þetta eftirlit verði tekið af sveitarfélögunum og að það verði höfð samræmd stjórnsýsla um þetta yfir allt landið. Svo komi til greina að einkaaðilar sjái um að framfylgja kröfunum á vipaðan hátt og skoðanastofur í sjávarútvegi. Pétur leggur áherslu á að Samtök atvinnulífsins séu alls ekki á móti heilbrigðiseftirliti og þeim kröfum sem það geri, en framkvæmd þess þurfi að breytast. Aðspurður segir hann að að stærstum hluta megi einkavæða heilbrigðiseftirlitð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×