Eyjamenn hafa tapað milljarði 2. júní 2005 00:01
Þegar dagbátar voru settir undir krókaaflamark og Alþingi samþykkti línuívilnun voru aflaheimildir að andvirði um eins milljarðs króna færðar með handafli frá Vestmannaeyjum. Sindri Viðarsson útskriftarnemi bendir á þetta í lokaritgerð sinni frá sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri. Hann staðhæfir einnig að veiðigjaldið hafi kostað sjávarútveg umtalsverðar upphæðir. Magnús Kristinsson útgerðarmaður í fyrirtækinu Bergur-Huginn ehf. í Vestmannaeyjum segist sjálfur hafa glatað rúmlega 100 þorskígildistonnum vegna þessara tilfærslna ríkisstjórnarinnar. "Það er endalaust verið að færa frá einum til annars og ég get ekkert borið hönd fyrir höfuð mér í þessu máli. Þetta er einhver pólitískur skollaleikur um línuívilnun og að krókaaflamarksbátar fái þetta og hitt og við alltaf látnir blæða þó maður sé búinn að fjárfesta í kvóta fyrir nokkra milljarða", segir Magnús. Magnús segir sína útgerð tapa tugum milljóna ár hvert vegna aðgerðanna. Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra segir veiðigjaldið auðvitað koma til með að kosta útgerðarmenn meira þegar það verður að fullu komið í framkvæmd en verði þó afkomutengt fyrir útgerðina. Árni vill ekki meina að Vestmannaeyingar hafi tapað á krókaaflamarki vegna þess að fiskaflahámarksbátar hafi nú frjálsa sókn í svokallaðar aukategundir. Hann bendir einnig á að þegar breytingin var gerð þá hafi kvótinn verið aukinn, "þó Vestmannaeyingar hafi fengið lægri prósentu þá fengu þeir samt enn sama magnið", segir Árni. "Þegar til lengri tíma er litið og framtíðarviðgangs fiskistofnsins þá skiptir engu máli hvort fiskurinn er veiddur innan aflamarks eða frjálsri veiði, hann er jafn dauður fyrir það. Það var einungis verið að færa þennan hóp inn í aflamarkið til að ná betri stjórn á veiðunum og það tókst svo vel að nú er staðan sú að aflamark í ýsu hefur aldrei verið meira og það er Vestmannaeyingum til góðs", segir Árni. Árni viðurkennir að vegna eðli útgerðar í Vestmannaeyjum þá hafi línuívilnunin valdið því að þar sé minna veitt.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Innlent Fleiri fréttir Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Sjá meira