Innlent

Þekkja réttindi sín ekki vel

Rúmur þriðjungur starfandi Íslendinga veit ekki í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða að sögn Guðjónu Bjarkar Sigurðardóttur, útskriftarnema við Viðskiptaháskólann á Bifröst. Guðjóna gerði á vormánuðum rannsókn meðal tæplega þrjú hundruð starfsmanna á vinnumarkaði og kannaði hversu vel þeir þekkja ýmis réttindi sín. "Þekking ungmenna reyndist almennt langminnst," segir Guðjóna en í ljós kom að nær helmingur starfsmanna á aldrinum 16-25 ára hafði ekki hugmynd um í hvaða stéttarfélag þeir greiða. Þessi aldurshópur kom einnig verst út þegar fólk var spurt hvort brotið hefði verið á rétti þeirra, en 40 prósent ungmenna töldu svo vera. "Þeim sem helst er brotið á virðist síst kunnugt um réttindi sín," segir Guðjóna. "Þessi niðurstaða er áhyggjuefni," segir Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands. Grétar bendir þó á að sambærileg rannsókn hafi að sínu viti ekki verið gerð áður. "Ég efast um að niðurstöðurnar hefðu orðið öðruvísi fyrir tíu eða tuttugu árum, en við þurfum að gera meira af því að upplýsa okkar fólk."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×