Innlent

Á móti flutningi flugvallarins

Meirihluti landsmanna, eða 55 prósent, vill hafa Reykjavíkurflugvöll þar sem hann er, samkvæmt könnun IMG Gallup. Mikill munur er þó á viðhorfum eftir búsetu og fylgi við stjórnmálaflokka. Rúmur helmingur íbúa á höfuðborgarsvæðinu vill færa völlinn en rúm 68 prósent íbúa á landsbyggðinni vilja flugvöllinn áfram þar sem hann er. Meirihluti Vinstri-grænna og Samfylkingarfólks vill flugvöllinn fluttan en fylgismenn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks eru á móti því að færa flugvöllinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×