Innlent

Gríðarlegur sinueldur við Þrengsli

Það var rétt fyrir klukkan eitt í dag sem slökkviliðinu í Þorlákshöfn barst tilkynning um sinueldinn í Geitafelli við Þrengslaveg. Þegar slökkviliðið kom á staðinn reyndist sinueldurinn svo mikill að kalla varð eftir aðstoð slökkviliðsins í Hveragerði. Reykur sem myndaðist barst langt upp á Hellisheiði. Guðni Þór Ágústsson, slökkviliðsstjóri í Þorlákshöfn, sagðist á vettvangi í dag ekki geta sagt til um hversu stórt svæði hafi brunnið en giskaði á um átta hektara, jafnvel meira. Töluverður vindur hamlaði slökkvistarfinu lengi vel og það var ekki fyrr en á sjötta tímanum sem tókst að ráða niðurlögum eldsins. Aðeins logaði enn í smá glóðum og verður fylgst með svæðinu fram eftir kvöldi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×