Innlent

Uppsagnirnar reiðarslag

"Þetta er reiðarslag," sagði Jón Páll Jakobsson, sjómaður á Bíldudal, í Hádegisútvarpi Talstöðvarinnar í gær. Jón Páll og eiginkona hans misstu bæði vinnuna þegar öllum starfsmönnum fiskvinnslustöðvarinnar Bílddælings var sagt upp um mánaðamótin. Hjónin eiga fjögur börn á aldrinum tveggja til tíu ára. "Það hefur að sjálfsögðu slæma þýðingu fyrir byggðarlagið þegar svo margir missa vinnuna," segir Jón Páll en ætla má að nær annar hver vinnandi maður í byggðinni hafi fengið uppsagnarbréf þegar fimmtíu starfsmönnum Bílddælings var sagt upp. Skel Bílddælinga er þó orðin hörð að sögn Jóns Páls enda Bílddælingur fimmta fyrirtækið í röðinni síðan árið 1992. Jón Páll telur eigin möguleika á starfi annars staðar ágæta en hann gæti þurft að sækja vinnu fjarri heimilinu. Erfiðara sé fyrir konu hans að fá aðra vinnu. Jón Páll segir fjölskylduna ekki ætla að yfirgefa Bíldudal. Til standi að reisa kalkþörungaverksmiðju á Bíldudal en vinnsla á ekki að hefjast fyrr en á haustmánuðum árið 2006. Jón Páll segir fólk almennt hætt að hugsa mikið um hvað við taki hjá byggðarlaginu. "Baráttuandinn er alveg horfinn," segir Jón Páll. "Mjög erfitt er að yfirgefa þorpið enda ómögulegt að taka húsið með sér." Lítil hreyfing er á fasteignamarkaði í bænum og þar býr fátt ungt fólk. "Byggðarlagið samanstendur að mestu af fólki sem komið er yfir miðjan aldur og á húsin sín skuldlaus," segir Jón Páll. Forsvarsmenn Bílddælings hafa sagst ætla að nota eins mánaðar uppsagnarfrest starfsfólksins til þess að endurskipuleggja reksturinn. Jón Páll segist vona það besta varðandi framtíð fyrirtækisins en ljóst sé að róðurinn verði þungur. "Reksturinn hefur verið mjög erfiður síðan árið 1992 þegar kvótinn fór enda höfum við síðan þá engan aðgang að auðlindinni."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×