Vá vegna fjölónæmra baktería 2. júní 2005 00:01
Fjölónæmum baketríum fjölgar með ógnandi hætti á Íslandi. Sérfræðingar á Norðulöndum biðla til stjórnvalda að grípa til samstillts átaks til að koma í veg fyrir að þær nái fótfestu. Þeir segja bakteríurnar eina mestu ógn við sjúklinga og heilbrigðiskerfi heimsins. Vinnuhópur norræna sýklafræðinga og smitsjúkdómalækna hefur skilað heilbrigðisyfirvöldum á Norðurlöndum skýrslu þar sem fram kemur að talsverð aukning hefur orðið á sýkingum vegna fjölónæmra baktería, sem erfitt er að ráða við, á norrænum sjúkrahúsum. Karl G. Kristinsson, yfirlæknir á sýklafræðideild og fulltrúi Íslands í norrænum samtökunum, segir að fleiri tilfella verði nú vart utan sjúkrahúsa og það valdi áhyggjum að þær sýkingarvarnir sem notaðar séu í dag séu annaðhvort ekki fullnægjandi eða þeim ekki fylgt nægilega vel eftir alls staðar. Karl segir enn fremur að lyf séu til við þessum bakteríum en þau eru ekki eins góð og við öðrum bakteríum og auk þess dýrari. Afleiðingar af sýkingum fjölónæmra baktería geta verið alvarlegar. Karl segir að í Bretlandi sé tíðni fjölónæmra baktería mjög há og það hafi aukið kostnaðinn í heilbrigðiskerfinu þar verulega. Legutími á sjúkrahúsum lengist og dánartíðni aukist eitthvað þannnig að bakteríurnar séu orðnar verulegt vandamál í Bretlandi. Þetta hafi í rauninni verið kosningamál fyrir síðustu kosningar þar í landi. Fjölónæmar bakteríur smitast tiltölulega auðveldlega að sögn Karls og segir hann samstillt átak þurfa til að koma í veg fyrir að þær nái fótfestu. Þær séu lífseigar og smitast helst með snertingu en geta einnig smitast með dauðum hlutum eða ryki. Skýrslu vinnuhópsins hefur verið komið til heilbrigðisyfirvalda á Norðurlöndum og vonast er eftir aðgerðum. Karl segir segir að hópurinn vilji að norrænu ríkin taki sig saman og samræmi skráningu á þess konar sýkingum og það verði tilkynnt um alla smitaða einstaklinga. Um leið vilji hann að samræmdar reglur gildi alls staðar á Norðurlöndum og að þeim verði fylgt eftir alls staðar. Þar fyrir utan þurfi að rannsaka hvers vegna fjölónæmar bakteríur séu að verða svo algengar úti í þjóðfélaginu þannig að hægt sé að finna helstu áhættuþætti fyrir því að fólk fái þær þar. Hægt sé að beita svokölluðum skimræktunum á tiltekna áhættuhópa og koma þannig í veg fyrir að smit berist inn á sjúkrahúsin.
Fréttir Innlent Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls Innlent Fleiri fréttir Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Sjá meira