Sölvatínsla í Stórhöfða 14. ágúst 2005 00:01
Söl þykir mörgum vera sælgæti. Fyrr á tímum var sölvatínsla algeng og taldist til hlunninda. Sá siður tíðkast enn í Vestmannaeyjum að fara til sölva, en þar þykja söl enn vera gott búsílag og herramannsmatur. Það er lagt í hann á tuðru frá Vestmanneyjahöfn og siglt að Sölvaflá í Stórhöfða. Leiðsögukona er Anna Svava Johnsen sem er alvön sölvatínslukona sem fer árlega í Sölvaflá. Fláin er öll þakin söl og fjörugrösum og á þessum tíma eru sölin fullþroskuð og tilbúin til tínslu. Hér þykir söl vera einna best á landinu. Það orsakast af því að ferskt vatn drýpur úr berginu í sölin sem skolast af vatni á fjöru. Við háflæði hverfur Sölvaflá undir sjó og þá kemst vatn hvergi að sölvunum. Það er þetta samspil vatns og sjávar gerir sölin ljúffeng og eftirsótt. Anna Svala Johnsen, húsmóðir segir bæði náttúrufegurðina og sjóferðina toga sig á staðinn. Einnig segir hún sölin vera bæði ákaflega holl og sérstaklega blóðaukandi. Það eru þó ekki sölin ein sem toga fólk á þennan stað. Öll umgjörð Sölvaflár er risavaxið listaverk. Litirnir byrja í rauðu og brúnu næst sjónum, en fara svo í skærgrænan lit þegar ofar dregur. Í þessari litadýrð byggja ritur bjargið og láta rituungarnir í hreiðrunum veru mannsins ekki trufla sig. Hvarvetna drýpur vatn úr berginu og vatnsdroparnir framkalla ólýsanlegt sjónarspil á landi og í sjó. Allt þetta hefur slíkt aðdráttarafl, að menn verða að koma hingað árlega til þess að fá áfyllingu. Það er farið að falla skart að og skal haldið heim á leið með afraksturinn. Sölvaflá getur verið hál yfirferðar, en það tilheyrir stemmingunni að hrasa jafnvel svolítið. Anna Svala Johnsen, segir það alveg nauðsynlegt að detta einu sinni í sjóinn í hverri ferð. Lítil hætta er á því að menn meiði sig þótt þeir skripli aðeins - og heitt faðmlag er huggun harmi gegn.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Sjá meira