76 þúsund rjúpur skotnar samkvæmt Skotvís 5. desember 2005 12:45
Sjötíu og sex þúsund rjúpur voru veiddar á veiðitímabilinu í haust samkvæmt könnun Skotveiðifélags Íslands. Einn þátttakenda í könnuninni veiddi 62 rjúpur en meðalfjöldi rjúpna á veiðimann var rúmlega tíu. Um 5000 þúsund voru skráðir í Skotveiðifélag Íslands og við gerð könnunarinnnar var hringt í um tíu prósent félagsmanna. 90 prósent aðspurðra svöruðu könnuninni og kom í ljós að 67 prósent félagsmanna fóru á veiðar þetta árið. Fjöldi veiðidaga á hvern veiðimann var að meðaltali fjórir. Sá sem oftast fór var við veiðar ellefu daga. Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Íslands, segir menn hafa haldið að veiðin yrði allt að 120 þúsund fuglar þar sem mörgum þótti veiðitíminn langur en könnun Skotvís gefi til kynna að það markmið sem félagið hafi sett sér hafi náðst. Aðspurður hvort hann treysti því að upplýsingarnar séu nokkuð nálægt raunveruleikanum játar Sigmar því og bendir á að Skotvís sé að spyrja eigin félagsmenn og hann hafi það á tilfinningunni að menn segi satt og rétt frá. Þá bendi rafræn skráning hjá veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar til svipaðra niðurstaðna. Einn veiðimannanna sem tók þátt í könnuninni veiddi 62 rjúpur og sá sem veiddi mest á einum degi skaut 48 fugla. Sigmar segir veiðimenn sem þessa vera í minnihluta í félaginu. Hann segir aðspurður að svo virðist sem ekki séu magnveiðimenn í röðum Skotvís, þeim sé frekar í nöp við félagið. Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra er ánægð með niðurstöðuna en segir ekki hægt að ákveða með framhaldið fyrr en eftir talningu næstu sumar. Hún segir tölurnar í samræmi við það sem stefnt var að þegar veiðar hafi verið leyfðar, þ.e. að þær yrðu sjálfbærar og þeim yrði stillt í hóf. Því hafi sölubannið verið sett á og veiðitími styttur og tilmælum beint til veiðimanna um hófsemi.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskur maður lést í Úkraínu Innlent Eldur við flugvöll á Grænlandi Erlent „Miður að bensínhákum sé umbunað“ Innlent Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Innlent Selenskí skipar nýjan starfsmannastjóra í kjölfar spillingarmáls Erlent Banaslys á Hvolsvelli Innlent Sprenging eftir að gestir opnuðu út Erlent Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Innlent Réttindalaus og keyrði á kyrrstæðan lögreglubíl Innlent Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Fleiri fréttir „Miður að bensínhákum sé umbunað“ Íslenskur maður lést í Úkraínu Nýársbarnið á Suðurlandi býr á Eyrarbakka Réttindalaus og keyrði á kyrrstæðan lögreglubíl Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Verðlækkanir á bensíni og áramótaheit landsmanna 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga Fjögur vilja tvö efstu hjá Viðreisn Kristín vill fyrsta sætið Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Þremur þjófum vísað úr landi Funda í janúar í kjaraviðræðum flugstétta Hlutfall fínasta svifryksins áberandi hátt á nýársnótt Telur nær öruggt að fleiri hundar muni týnast Dæmi um að fólk hafi flúið upp í sveit Þurfi að sannfæra flokkinn Sex tíma leikskóladvöl nú gjaldfrjáls í Hafnarfirði Neytendur eigi meira inni eftir eldsneytislækkanir á nýju ári Hafna beiðni manns sem braut kynferðislega á stjúpdóttur Banaslys á Hvolsvelli Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Eldur í bíl við Breiðhellu Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Sjá meira