Innlent

Komið í veg fyrir stórt hryðjuverk

Lögreglan í Ástralíu handtók snemma í gærmorgun sautján manns sem grunaðir eru um samsæri um að fremja mannskæða hryðjuverkaárás í landinu. Meðal hinna handteknu er herskár múslimaklerkur, Abu Bakr að nafni, sem er þekktur fyrir að hafa borið lof á Osama bin Laden.

Klerkurinn er sakaður um að vera aðalskipuleggjandi hins áformaða tilræðis. Annar hinna handteknu hlaut skotsár á hálsi er hann varðist handtöku með skotvopni. Einn lögreglumaður særðist lítillega. "Ég er ánægður með að okkur skyldi takast að spilla því sem ég tel hafa verið lokastig undirbúnings að stórri hryðjuverkaárás hér í Ástralíu," sagði Ken Moroney, lögreglustjóri Nýja Suður-Wales, í útvarpsviðtali. Hann sagðist búast við að fleiri sakborningar yrðu handteknir í tengslum við rannsóknina.

John Howard forsætisráðherra þakkaði lögregluyfirvöldum fyrir vel unnið verk á blaðamannafundi sem sendur var út beint í sjónvarpi. Howard varaði í síðustu viku við því að hryðjuverkaárás væri hugsanlega yfirvofandi. Handtökurnar fóru fram í samstilltum áhlaupum lögreglu á nokkur hús í Sydney og Melbourne, tveimur stærstu borgum landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×