Innlent

Olíurisar með methagnað

MYND/AP

Á sama tíma og olíuverð hefur verið í nánd við sögulegt hámark er hagnaður alþjóðlegra olíufyrirtækja einnig í hámarki. Árið stefnir í að vera það besta í sögu olíuiðnaðarins. Olíurisinn Exxon tilkynnti um hagnað sinn á þriðja ársfjórðungi í gær og hann er sá mesti í sögunni - tíu milljarðar dollara eða ríflega sexhundruð milljarðar króna. Fyrirtækið varð um leið það fyrsta fyrirtækið á markaði sem fer yfir hundrað milljarða dollara í sölu. Það segir sína sögu að hagnaðurinn á því þriggja mánaða tímabili sem hér um ræðir er meiri en árleg þjóðarframleiðsla helstu olíuríkja heims.

Öllu stóru olíufyrirtækin greindu frá hagnaði í vikunni og alls staðar var sömu sögu að segja: methagnaður og ofsagróði.

Ástæðan er hátt olíuverð og hátt verð á gasi. Rekja má það verð til náttúruhamfara í Bandaríkjunum og mikillar eftirspurnar þar og í Kína.

Fréttir af þessum methagnaði á sama tíma og olíuverð er svo hátt að það er talið stefna efnahagsþróun á heimsvísu í hættu hefur vakið gagnrýni stjórnmálamanna og fleiri sem benda á að ein ástæða þessa háa verðs sé skortur á olíuvinnslustöðvum. Olíurisarnir hafi ekki fjárfest í slíkum stöðvum í um tvo áratugi og í ljósi methagnaðar sé ljóst að ekki vanti til þess fjármagn.

Undantekningin er Asía, þar sem olíurisarnir reyna nú að festa rætur enda ljóst að sprengja er í eldsneytisþörf í Kína og Indlandi. Þar er fjárfest en annars staðar ekki og segja fréttaskýrendur tímaritsins Economist ástæðuna þá, að stjórnendur olíufyrirtækjanna hafi ekki trú á því að olíuverðið haldist hátt, þó að olíusérfræðingar á markaði segi engar vísbendingar um að nokkuð gerist á næstunni sem gæti haft áhrif á afkomu olíufélaga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×