Innlent

Stefnir Sigurði Líndal

Lögfræðingur Friðriks Þórs Guðmundssonar, faðir pilts sem lést í flugslysi í Skerjagarði fyrir fimm árum, hefur ritað Sigurði Líndal, fyrrverandi prófessor, bréf þar sem þess er krafist að hann dragi ummæli sín til baka og biðji Friðrik afsökunar. Verði Sigurður ekki við þessu muni Friðrik stefna honum fyrir dóm og freista þess að fá ummæli hans dæmd dauð og ómerk. Sigurður ásakaði Friðrik um að hafa brotið trúnað og komið upplýsingum úr skýrslu sem starfshópur vann um flugslysið í Skerjafirði í fjölmiðla en upplýsingar höfðu borist fjölmiðlum áður en starfshópurinn hugðist kynna skýrsluna á blaðamannafundi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×