Erlent

Búist við útvatnaðri umbótaályktun

Leiðtogafundur Sameinuðu þjóðanna hófst í höfuðstöðvum samtakanna í New York í gær. Á þessum 60 ára afmælisfundi stóðu vonir til að samþykktar yrðu tillögur að víðtækri endurskipulagningu og umbótum á uppbyggingu og starfsemi samtakanna, en sennilegast þykir að ekki takist samkomulag um annað en mjög útvatnaða útgáfu af þessum umbótatillögum. Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, sem er starfandi forseti allsherjarþings SÞ, setti fundinn með ávarpi þar sem hann hvatti ráðamenn heims til að taka saman höndum um að hindra stríðsátök og þjóðarmorð og vernda mannréttindi. Yfir 160 þjóðar- og ríkisstjórnaleiðtogar mættu til að hlýða á Persson brýna fyrir sér að milljónir mannslífa væru í hættu ef ekki verður gripið til afdráttarlausra ráðstafana til að uppræta fátækt í heiminum. Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, sagði í ávarpi sínu að ályktunin sem leiðtogarnir munu afgreiða í lok fundarins á morgun væri "góð byrjun" en ekki "þær víðtæku grundvallarumbætur" sem hann hefði lagt til. Hann kallaði eftir því að vasklega yrði gengið fram í að útkljá ágreiningsmál sem urðu til þess að ekki reyndist unnt að ná samkomulagi um að ganga lengra í þessari atlögu. "Því að eitt hefur komið skýrt í ljós í þessu ferli sem við hófum fyrir tveimur árum: hvað svo sem skilur okkur að stöndum við eða föllum saman, í þessum heimi þar sem allir eru háðir öllum," sagði Annan. George W. Bush Bandaríkjaforseti reyndi í ávarpi sínu að "selja" alþjóðasamfélaginu áform um að útbreiða lýðræði í Írak og víðar um heiminn, stokka upp starfsemi Sameinuðu þjóðanna og gera átak í að afnema hömlur á alþjóðaviðskipti. Margir í áheyrendahópnum hefðu frekar viljað heyra hann segja að Bandaríkin myndu hætta að sniðganga alþjóðasamninga á borð við Kyoto-sáttmálann og um stofnun Alþjóða sakadómstóls, en Bush vildi nota tækifærið til að lýsa fyrir leiðtogunum sýn sinni á það hver væru brýnustu úrlausnarefni alþjóðamála.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×