Blóðbað í hverfi sjía-múslima 14. september 2005 00:01
Á annan tug sprenginga urðu í miðborg Bagdad í gær, sem bönuðu að minnsta kosti 152 manns og særðu minnst 542. Spreningarnar byrjuðu með stórri sjálfsmorðs-bílsprengjuárás sem beint var gegn daglaunamönnum sem safnast höfðu saman á þessum stað í borginni í von um að fá vinnu þann daginn. Íraksdeild Al Kaída-hryðjuverkanetsins lýsti ábyrgð á tilræðunum á hendur sér. Fyrsta árásin var blóðugust. Þar fórust minnst 88 manns og 227 særðust. Hún var gerð í Kazimiyah-hverfinu, en flestir íbúar þar eru sjía-múslimar. Í fyrrinótt voru sautján menn teknir af lífi í þorpi norður af Bagdad, en að þeim meðtöldum var mannfallið í ofbeldisverkum síðasta sólarhrings í Bagdad og nágrenni komið upp í 169 manns. Háttsettur foringi í bandaríska herliðinu í Írak tjáði AP-fréttastofunni að hann teldi að árásirnar væru hefnd fyrir áhlaup bandarískra og íraskra hersveita í norður-írösku borginni Tal Afar, en markmiðið með því var að svæla uppreisnarmenn út úr fylgsnum sínum nærri landamærunum að Sýrlandi. Arabíska Al-Jazzeera-sjónvarpsstöðin hafði eftir talsmönnum Al Kaída að þetta mat væri rétt. Talið er að blóðbað gærdagsins hafi verið það næstversta sem orðið hefur í Írak frá því Bandaríkjamenn leiddu innrás í landið vorið 2003. Ári eftir innrásina, 2. mars 2004, dóu að minnsta kosti 181 og 573 særðust í samræmdum sprengjuárásum á helgar moskur sjía-múslima í Karbala og Bagdad. Er ofbeldið blossaði svo illilega upp á ný eftir tiltölulega rólega tíð undanfarnar vikur sat Íraksþing enn á rökstólum um endurbætur á drögum að nýrri stjórnarskrá, sem væru til þess fallnar að koma til móts við óánægju súnní-múslima, en það eru herskáir menn úr þeirra hópi sem eru uppistaðan í liði uppreisnarmanna. Íraskir stjórnmálaleiðtogar fordæmdu árásirnar. Husein al-Shahristani, varaforseti þingsins, sagði þær "villimannslegar og hrottalegar".
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Sjá meira