Erlent

Bretar hamstra bensín

Bretar hamstra þessa dagana bensín sem aldrei fyrr þó að verðið sé í hámarki. Bensínkaupin koma þó ekki til af góðu heldur er fólk hrætt við að bensínbirgðir landsins verði brátt á þrotum. Stórir hópar fólks hafa skipulagt þriggja daga mótmæli þar sem starfsemi bensínstöðva og olíufyrirtækja verður trufluð og óttast er að í kjölfarið verði skortur á bensíni um allt land. Fyrir fimm árum stóðu sömu hópar fyrir mótmælaaðgerðum í viku og í kjölfarið myndaðist ófremdarástand. Bensínframleiðsla dróst mjög saman og mótmælin kostuðu breskan efnahag offjár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×