Erlent

Fylgjast með hundruðum í Bretlandi

Bresk yfirvöld fylgjast með hundruðum manna til þess að reyna að koma í veg fyrir að hryðjuverkaárásir verði gerðar aftur í landinu. Frá þessu greindi Charles Clarke, innanríkisráðherra Bretlands, í dag þegar hann kom fyrir þingnefnd sem fjallar um eftirmál hryðjuverkaárásanna á Lundúnir í júlí. Clarke og Ian Blair, lögreglustjóri í Lundúnum, vörðu einnig þá stefnu lögreglunnar að skjóta þá til bana sem grunaðir væru um að ætla að fremja hryðjuverk og sögðu stefnuna nauðsynlega til þess að geta komið í veg fyrir hryðjuverk. Þessi stefna var harðlega gagnrýnd í kjölfar þess að breska lögreglan skaut fyrir mistök brasilískan rafvirkja þar sem hún taldi að væri hryðjuverkamaður. Yfirvöld í Bretlandi hafa gripið til ýmissa aðgerða í kjölfar hryðjuverkaárásanna 7. og 21. júlí og hyggjast m.a. setja lög sem kveða á um að vísa megi þeim úr landi sem hvetja til hryðjuverka eða upphefja þá sem gera slíkt. Clarke greindi enn fremur frá því frammi fyrir þingnefndinni að lögregla rannsakaði nú tengsl mannanna sem frömdu hryðjuverkin í júlí og erlendra hryðjuverkahópa, en hún taldi í upphafi að al-Qaida samtökin hefðu staðið á bak við árásirnar en hefur ekki enn fundið sannanir fyrir því.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×