Innlent

Úr níunda bekk beint í MA

Menntaskólinn á Akureyri var settur í dag með athöfn í Kvosinni, sal skólans á Hólum. Jón Már Héðinsson skólameistari fjallaði um skólaárið fram undan og gat um margvíslega nýbreytni í starfinu og spennandi markmið. Hann sagði að í skólanum yrðu í vetur fleiri nemendur en nokkru sinni áður, um 690 talsins. Þeirra á meðal eru 17 nemendur sem koma í skólann rakleitt úr 9. bekk grunnskóla. MA er fyrsti skólinn sem gerir tilraun til að brúa bilið milli skólastiganna á þennan hátt og gefa nemendum þannig færi á að ljúka stúdentsprófi ári fyrr en venja er hér á landi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×