Erlent

Ringulreið í rafmagnsleysi í LA

Töluverð ringulreið braust út í Los Angeles í Bandaríkjunum í gær þegar stórir hlutar borgarinnar urðu rafmagnslausir eftir að opinberir starfsmennn gerðu mistök við tengingar á háspennulínum. Rafmagnsleysið náði til tveggja milljóna manna í borginni og nágrenni hennar. Margir festust í lyftum og umferðarljós á stórum gatnamótum urðu óvirk. Aðeins einum degi áður hafði sjónvarpsstöðin ABC birt hótanir al-Qaida um árásir á borgina og margir óttuðust hið versta. Fljótlega kom hið rétta í ljós og innan tveggja tíma var búið að koma rafmagninu aftur á.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×