Verstu óeirðir í áraraðir 11. september 2005 00:01
Verstu óeirðir í áraraðir brutust út í Belfast á Norður-Írlandi í gær og stóðu fram undir morgun. Að minnsta kosti tugur lögreglumanna særðist þegar mótmælendur köstuðu í þá múrsteinum og heimatilbúnum bensínsprengjum og kveiktu í bílum og byggingum. Ástæða átakanna var sú sama og á hverju ári. Óraníuhreyfingin er ein elsta og öflugasta hreyfing þeirra Norður-Íra sem eru mótmælendatrúar. Á hverju hausti marsera Óraníumenn um götur Belfastborgar. Sérstök bresk göngunefnd var skipuð árið 1997 til að hafa umsjón með göngunum og sjá til þess að leiðin lægi ekki of nærri alkaþólskum hverfum. Þegar lögreglumenn hugðust sjá til þess að Óraníumenn gætu ekki þrammað í gegnum Springfieldhverfið, sem er rammkaþólskt, varð allt vitlaust og átök brutust út. Þau breiddust svo um borgina eins og eldur í sinu og áttu lögreglumenn og hermenn sem kallaðir voru til í mestu vandræðum með að ná stjórn á borginni á ný. Mótmælendur köstuðu heimatilbúnum sprengjum og múrsteinum í þá og til skotbardaga kom á að minnsta kosti einum stað. Tugir bíla voru brenndir og í norðurhluta Belfast var kveikt í byggingum líka. Að minnsta kosti tugur lögregluþjóna er særður en fjöldi slasaðra mótmælenda er ekki kunnur því þeir forðast sjúkrahús eftir átök við lögregluna þar sem innskráning þar gæti leitt til handtöku. Lögreglustjórinn segir mótmælendur bera ábyrgð á því hversu alvarlegt ástandið varð en Óraníumenn saka lögregluna um óþarfa hörku og ofbeldi, en hún sprautaði vatni yfir mótmælendur og skaut á þá með plastkúlum.
Erlent Fréttir Mest lesið 8,8 stiga skjálfti í Rússlandi: Flóðbylgjuviðvaranir gefnar út víða um Kyrrahaf Erlent „Hann stal henni“ Erlent Fjöldi ferðamanna slíkur að rotþróin ræður ekki við það Innlent Ákærð fyrir að bana föður og tilraun til að bana móður Innlent Pokrovsk riðar til falls Erlent Veðurspáin fyrir helgina að skána Innlent Ísland og Palestína gera samkomulag um samstarf Innlent Lauma sér inn í útfarir og senda kirkjuvörðum fingurinn Innlent Ísland ekki í fararbroddi heldur fylgi öðrum í humátt á eftir Erlent Hvað á að gera um Verslunarmannahelgina? Innlent Fleiri fréttir Vill greiða sex milljarða tryggingu til að losna úr haldi Pokrovsk riðar til falls 8,8 stiga skjálfti í Rússlandi: Flóðbylgjuviðvaranir gefnar út víða um Kyrrahaf Arabaríki og lönd ESB kalla eftir tveggja ríkja lausn og afvopnun Hamas Ísland ekki í fararbroddi heldur fylgi öðrum í humátt á eftir „Hann stal henni“ Bretar hyggjast viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki Færeyingar heita refsiaðgerðum gegn Rússlandi: „Eigum eftir að sjá hvernig efndirnar verða“ Gefa lítið fyrir afarkosti Trumps Ætlaði í höfuðstöðvar NFL Bandarískir trúboðar herja á einangraða ættbálka með drónum og sólarknúnum afspilunartækjum Trump um Epstein: „Hann stal fólki sem vann fyrir mig“ Íhuga að greiða sextíu milljarða til að friðþægja Trump Hyggjast greiða 60 þúsund á ári fyrir öll börn undir þriggja ára „Versta mögulega tilfelli hungursneyðar“ Maxwell biðlar til Hæstaréttar Á annan tug í valnum eftir að Rússar sprengdu fangelsi í loft upp Trump segir „alvöru hungursneyð“ ríkja á Gasa Fjórir látnir eftir skotárás á Manhattan Vill að skýrslutaka Murdochs fari fram eins fljótt og hægt er Tóku tugi af lífi eftir að hafa fengið lausnarfé Elsti Gallagher-bróðirinn ákærður fyrir nauðgun Krísa yfirvofandi: Þurr svæði stækka og þorna hraðar Fækkar dögunum sem hann gaf Pútín: „Ég held ég viti þegar svarið“ Vara við hópeitrunum af völdum THC eftir atvik í fyrra Þrír látnir eftir að lest fór af sporinu Ætla að breyta heræfingum eftir skammir frá systur Kims Semja um vopnahlé 64 prósent myndu þiggja gjaldfrjáls þyngdarstjórnunarlyf Skotárás í Bangkok: Skaut fimm til bana og fyrirfór sér Sjá meira