Amfetamínframleiðsla á Íslandi 27. ágúst 2005 00:01
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli telur öruggt að amfetamín sé framleitt hér á landi með skipulögðum hætti. Hann segir vísbendingar um að erlend glæpasamtök séu að ná hér fótfestu. Lithái sem var tekinn í Leifsstöð með tvær flöskur af brennisteinssýru í vikunni, hefur verið ákærður fyrir brot á fíkniefnalöggjöfinni. Lithái á þrítugsaldri var í gær ákærður fyrir að hafa komið með tvær flöskur af brennisteinssýru til landsins á mánudag. Hann hefur verið úrskurðaður í farbann. Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, segir að efnin hafi verið í tveimur áfengisflöskum og það var ekki fyrr en eftir mjög ýtarlega leit að tollverðir áttuðu sig á því að eitthvað grunsamlegt var á ferðinni þar sem flöskurnar þóttu of þungar. Ekki mátti sjá á flöskunum að átt hefði verið við innsiglin. Við athugun á Keflavíkurflugvelli fékkst ekki fíkniefnasvörun við innihaldi flasknanna og var það sent til greiningar á Rannsóknarstofu Háskólans í lyfjafræði. Þar tók þrjá daga að greina innihaldið. En er víst að nota hafi átt brennisteinssýruna til amfetamínsframleiðslu. Jóhann telur tilganginn ekki vera annan en að nota til amfetamínframleiðslu og það er alveg ljóst að hans mati að ólöglegur tilgangur lægi að baki innflutningnum. Jóhann segist geta fullyrt að amfetamín sé framleitt hérlendis en segir að þetta sé í fyrsta sinn sem ákveðnar vísbendingar tengja erlenda aðila við framleiðsluna. Jóhann segir fróðlegt að sjá hvernig tekið verði á málinu hjá dómstólum þar sem það er fyrsta sinnar tegundar. Þá segir Jóhann fundinn benda til þess að tengsl Íslands við erlend glæpasamtök hafi verið að styrkjast. Skýring Litháans er ótrúverðug en hann segist hafa keypt flöskurnar sem áfengisflöskur í Póllandi í góðri trú. Ef það er satt má hann þakka tollvörðum lífsbjörgina þar sem sýran er banvæn þeim sem neyta hennar. Sveinbjörn Gizurarson, prófessor í klínískri lyfjafræði, segir virkilega varhugavert að flytja brennisteinssýru í handfarangri flugvéla. Ef sýran kemst í tæri við vatn myndast mikill hiti þannig lítil sprenging gæti orðið. Þá getur sýran valdið slæmum bruna á húð.
Fréttir Innlent Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Hæsta einstaka tjónið vegna netglæpa 114 milljónir króna Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Fleiri fréttir Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk Hæsta einstaka tjónið vegna netglæpa 114 milljónir króna No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Sjá meira