Árleg kaupgeta 24 milljónir króna 26. ágúst 2005 00:01
Borgaryfirvöld úthlutuðu Listasafni Reykjavíkur 13,5 milljónum króna til listaverkakaupa fyrir árið 2005. Fjárhæðin var hækkuð fyrir nokkrum árum en var lengi 12 milljónir. Listasafn Íslands hefur úr 10,8 milljónum að spila þetta árið og koma þeir peningar úr ríkissjóði. Samanlagt hafa stóru söfnin tvö 24,3 milljónir til kaupa á listaverkum. Við þá fjárhæð bætast 3,5 milljónir króna sem Listasafn Reykjavíkur fær vegna útilistaverka en misjafnt er milli ára hvort peningarnir eru nýttir til kaupa á nýjum verkum eða framkvæmda vegna flutnings eða uppsetningar. Söfnin tvö kaupa árlega í kringum 40 listaverk hvort, samtals um 80 verk. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær hyggst Sigurjón Sighvatsson kaupa verk Ólafs Elíassonar, Blinda skálann, og hefur kaupverðið verið talið um 30 milljónir króna. Þótt verðið sé mun hærra en nokkurt listasafn á Íslandi ræður við að greiða eru heimildarmenn blaðsins úr listalífinu sammála um að það sé fjarri því að vera of hátt. Ólafur Elíasson er í fremstu röð listamanna á sínu sviði í heiminum og verkið sem um ræðir var meðal annars sýnt á Feneyjatvíæringnum. Í því samhengi má líka benda á að verk samtímalistamanna seljast gjarnan á mun hærra verði, jafnvel svo hlaupi á hundruðum milljóna. Að sögn Eiríks Þorlákssonar, forstöðumanns Listasafns Reykjavíkur, kostaði dýrasta verkið sem keypt hefur verið í hans tíð hjá safninu á milli fjórar og fimm milljónir króna. Er það eftir áðurnefndan Ólaf Elíasson. Eiríkur segir erfitt að verðmeta heildar listarverkaeign safnins en ætlar að hún nemi milljörðum króna. Ólafur Kvaran, forstöðumaður Listasafns Íslands, fagnar kaupum Sigurjóns á verki Ólafs og segir ánægjulegt þegar einstaklingar fjárfesti í myndlist. Hann segir þó mikilvægt að listaverk sem svo háttar til um verði áfram sýnileg en ekki lokuð inni fáum til yndis.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Fleiri fréttir Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Sjá meira