Flóð á meginlandi Evrópu í rénun 25. ágúst 2005 00:01
Flóðin í Mið- og Austur-Evrópu virðast loks í rénun. Að minnsta kosti fjörutíu og tveir hafa farist í hamförunum og eignatjón er gríðarlegt. Ástandið í Rúmeníu er einna verst og þar eru fórnarlömbin flest, 31. Þar er hreinsunarstarf nú að hefjast og sömuleiðis aðgerðir til að aðstoða þá sem misst hafa heimili sín, en flóðið eyðilagði 1400 hús. Þá hafa þúsundir manna þurft að yfirgefa heimili sín í Sviss, Austurríki og Þýskalandi þar sem mikið hvassviðri hefur fylgt úrkomunni. Í Þýskalandi eru íbúarnir farnir að snúa aftur og hreinsa til, moka burt aur og þurrka upp vatn. Talið er að vatnsmagnið í Dóná hafi náð hámarki síðdegis í dag. Fritz Mattes, bæjarstjóri í Kelheim í Þýskalandi, sagðist í dag vona að vatnið í ánni færi ekki yfir methæðina sem væri 7,47 metrar þannig endurmeta þurfi hæðarmörkin. Best væri að flóðið rénaði. Í Sviss hefur fólki ekki verið leyft að snúa heim þar sem enn er búist við rigningu í vikunni og ástandið er ótryggt. Í vesturhluta Austurríkis sögðu yfirvöld að það versta væri yfirstaðið og þar tínist fólk nú heim til sín smátt og smátt, þeir sem það geta. Yfirvöld í öllum löndunum þar sem flóðin hafa valdið eyðileggingu, en Pólland, Búlgaría og Moldavía eru einnig þar á meðal, hafa lofað því að aðstoða þá sem hafa orðið illa úti. Það er þó ljóst að ríkisstjórnir þessara landa hafa mismikið fé handbært í ríkiskassanum til að bregðast við svona hamförum, en samtals nemur tjónið líklega milljörðum króna.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Innlent Fleiri fréttir Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Sjá meira