Brottflutningnum lokið 23. ágúst 2005 00:01
Sögulegum brottflutningi ísraelskra landtökumanna af svæðum Palestínumanna lauk í gær þegar tvær byggðir á Vesturbakkanum voru rýmdar. Flutningarnir tóku aðeins fjórðung af þeim tíma sem upphaflega var búist við og átök vegna þeirra urðu mun minni en óttast var. Í gær réðust 6.000 ísraelskir hermenn inn í tvær landnemabyggðir á Vesturbakkanum, Sanur og Homesh, en vitað var þar hefðu um 1.600 manns hreiðrað um sig til að mótmæla rýmingunni. Vesturbakkinn hefur mun meira sögulegt og trúarlegt gildi í augum gyðinga en Gaza-ströndin og því var búist við heiftúðugum átökum á milli hermanna og öfgaþjóðernissinna. Fyrst í stað sýndu mótmælendurnir raunar nokkurt viðnám en þeir máttu sín lítils gegn fílefldum hermönnunum. Níu klukkustundum eftir að hermenn réðust til inngöngu höfðu allir mótmælendurnir verið fjarlægðir. Íbúar Ganim og Kadim, hinna landnemabyggðanna tveggja sem rýma átti á Vesturbakkanum, höfðu þegar haft sig á brott og því var þegar hafist handa við að rífa hús í báðum kjörnunum í gær. Þar með hefur rýming byggðanna 25 aðeins tekið eina viku en reiknað var með að aðgerðirnar stæðu yfir í heilan mánuð hið minnsta. Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar, hringdi í Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, í gær og óskaði honum til hamingju með "hugrakka og sögulega ákvörðun. Abbas stakk upp á að friðarviðræðurnar yrðu teknar fljótlega upp að nýju og varð leiðtogunum að samkomulagi að hittast við fyrsta tækifæri. Landnemabyggðirnar fjórar eru aðeins brot af hverfum Ísraela á Vesturbakkanum en þar búa alls 240.000 Ísraelsmenn. Margir álíta að með rýmingu byggðanna á Gaza og þessara fjögurra á Vesturbakkanum ætli ísraelska ríkisstjórnin að herða enn frekar tökin á þeim svæðum sem Ísaelar byggja á þessum slóðum.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira