Harðvítugar deilur um stjórnarskrá 23. ágúst 2005 00:01
Harðvítugar deilur standa um stjórnarskrá Íraks en drög að henni voru lögð fram í gærkvöldi. Til stendur að þingið samþykki stjórnarskrána á næstu dögum þrátt fyrir mótmæli og hótanir um borgarastríð. Allt bendir til þess að ríkisstjórn Íraks með sjíta í broddi fylkingar þvingi stjórnarskrána í gegnum þingið þrátt fyrir andstöðu súnníta sem hóta öllu illu. Sjítar og Kúrdar náðu samkomulagi um málamiðlunartillögu sem báðir hóparnir geta lifað með, enda skipta þeir á milli sín olíulindunum í suðri og norðri. Sjítar kveðast hvorki sjá tilgang né hag í að koma til móts við athugasemdir súnníta enda séu fulltrúar þeirra í stjórnarskrárnefndinni ekki fulltrúar meirihlutans og því sé réttast að þingið samþykki stjórnarskránna og hún verði lögð í dóm almennings í kosningu. Hugsanlega mætti gera einhverjar minniháttar breytingar, en ekki meira. Súnnítum gremst skipting auðlindanna og að Írak verði sambandsríki, en þeir telja það í raun fyrsta skrefið í átt að því að kljúfa landið. Fulltrúar þeirra telja víst að uppnám verði á götum borga og bæja verði stjórnarskráin samþykkt á þingi. Þeir hóta því að berjast gegn henni með öllum ráðum og fá hana fellda í þjóðaratkvæðagreiðslu. Telja verður nokkrar líkur á að það gæti tekist, því að tveir þriðju hlutar kjósenda í þremur af átján héruðum Íraks verða að hafna stjórnarskránni til að hún verði felld. Talið er hugsanlegt að kjósendum í borgunum Mósúl, Tíkrít og Ramadi hugnist stjórnarskráin lítt. Við þetta bætist andstaða sumra leiðtoga Sjíta, eins og harðlínuklerksins Múkktada al-Sadrs, sem er með öllu mótfallinn sambandsríki í Írak, og fyrrverandi bráðabirgðarforsætisráðherrans Iyads Allawis, sem hugnast ekki hvernig stjórnarskráin er þvinguð gegnum þingið. Almenningur gæti einnig notað þjóðaratkvæðagreiðslu til að refsa stjórnvöldum, sem hefur hvorki tekist að tryggja öryggi né bæta lífsgæði fólks frá því að ríkisstjórnin tók við völdum fyrr á þessu ári. Til stendur að þingið ljúki umfjöllun um stjórnarskránna innan þriggja daga og að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram í október hið síðasta.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira