Tekist á um stjórnarskrá 22. ágúst 2005 00:01
Borgarastríð blasir við þvingi Sjítar og Kúrdar sína útgáfu af írakskri stjórnarskrá í gegnum þingið, þvert á vilja Súnníta. Stjórnarskráin átti að vera tilbúin fyrir viku en þá var ákveðið að framlengja frestinn um viku þar sem samkomulag lá ekki fyrir. Í dag hafði staðan lítið breyst, deilt var um lykilatriði meðan árásirnar héldu áfram fyrir utan örugga múra græna svæðisins í Bagdad. Síðdegis náðu þó Sjítar og Kúrdar samkomulagi um skjal sem þeir hyggjast leggja fram sem stjórnarskráruppkast og fá samþykkt, enda mynda þeir meirihluta. Súnnítar eru alls ekki sáttir við þetta, hóta því að fá drögin felld og segja borgarastyrjöld blasa við að öðrum kosti. Það sem stendur helst í súnnítunum er að Írak verður sambandsríki samkvæmt stjórnarskrárdrögunum og mikilvæg héruð í suðri og norðri í raun á valdi sjíta annars vegar og Kúrda hins vegar. Á þessum svæðum er að finna mikilvægustu olíulindir Íraks. Súnnítarnir segja drögin innihalda allt það sem valdið hefur vandræðum í sögu Íraks: kynþáttahyggju, sértrúarstefnu og aðskilnað. Samkvæmt þeim mörkum sem írakska þingið hefur sett sér verður að ljúka vinnu við stjórnarskrána fyrir miðnætti, eftir rúman klukkutíma, annars blasir við sundrung. Hugsanlega yrði að leysa upp þingið og boða til kosninga.
Erlent Fréttir Mest lesið Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Innlent Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Innlent Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Erlent Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna Innlent Hrafnagilshverfi stækkar ört Innlent Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Erlent Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Erlent Fleiri fréttir Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Sjá meira