Á brattann að sækja fyrir Benedikt 21. ágúst 2005 00:01
Heimsókn Benedikts páfa sextánda til Þýskalands lauk í dag með útimessu fyrir framan um eina milljón ungmenna sem komin voru alls staðar að úr heiminum til að berja nýja páfann augum. Honum þótti takast ágætlega upp, en það er mál manna að það sé á brattann að sækja fyrir Benedikt að ávinna sér viðlíka vinsældir meðal æskunnar og forveri hans Jóhannes Páll annar naut. Heimsmót kaþólskra ungmenna hefur staðið síðustu daga í nágrenni Kölnar í Þýskalandi. Það hefur verið haldið á þriggja ára fresti frá því að Jóhannes Páll páfi annar fékk hugmyndina að því fyrir tuttugu árum. Þýska lögreglan telur að um ein milljón þátttakenda hafi verið á grasflötunum í Marienfeld þegar Benedikt páfi sextándi kom þar akandi í hinu sérstaka farartæki sem kallað er popemobile á ensku, páfabíllinn. Flestir höfðu krakkarnir lagt mikið á sig að komast þangað, þau tóku lestir og rútur og gengu síðan nokkra kílómetra, komu sér fyrir í gærkvöldi og sváfu undir berum himni í nótt til að vera tilbúin þegar messa hæfist. Benedikt páfi mælti á fjórum tungumálum - móðurmáli sínu þýsku, frönsku, ítölsku og ensku. Páfi lagði áherslu á að trúin væri ekki neytendavara þar sem hægt væri að velja það sem manni líkaði og sleppa öðru heldur gilti reglan um allt eða ekkert. Hann sagði enn fremur að frelsið snerist ekki einungis um að tryggja líf og sjálfsforræði heldur um það lifa í sannleika og manngæsku þannig að fólk gæti orðið satt og gott. Jóhannes Páll var afar vinsæll og Benedikts páfa sextánda bíður greinilega heilmikið verkefni að ávinna sér traust og aðdáun æskunnar í sama mæli. Sumir sögðu að hann væri íhaldssamur í viðhorfum sínum en aðrir vonuðu að hann fetaði í fótspor Jóhannesar Páls annars og skapaði frið á jörðu. Þá bentu sumir á að Jóhannes Páll hefði verið mikill persónuleiki en æskan þekkti Benedikt ekki enn. En hann gladdi að minnsta kosti ástralska hópinn sérstaklega með þeim orðum að næsta heimsmót yrði haldið í Sydney.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira