Átök á Gasaströndinni í dag 21. ágúst 2005 00:01
Til nokkurra átaka kom milli landnema og ísraelskra hermanna í dag, þegar þeir síðarnefndu hófu að rýma síðustu landnemabyggðir gyðinga á Gasaströndinni og Vesturbakkanum, sem ríkisstjórn Ariels Sharons hefur ákveðið að skuli víkja. Húsin verða rifin áður en Palestínumenn fá yfirráð yfir landinu en þeir mega nýta byggingarefnið sem eftir verður. Þau vita að það þýðir lítið að slást við hermennina en gera það samt af reiði yfir því að þurfa að yfirgefa heimili sín. Í landnemabyggðum á Vesturbakkanum hefur brottflutningurinn mætt heldur harðari andstöðu en á Gasaströndinni. En í Atzmina, einni af síðustu byggðunum á Gasaströndinni sem herinn rýmdi, höfðu íbúarnir kveikt í dekkjum og heyi svo erfiðara yrði fyrir herinn að komast inn um hliðið. Sumir íbúanna höfðu nælt í sig gulum Davíðsstjörnum og vildu með því gefa í skyn að meðferðin á þeim væri eins og undir stjórn nasista í seinni heimsstyrjöldinni. Þetta hefur ekki fallið í góðan jarðveg hjá Ísraelsmönnum sem lifðu helförina af. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, kallaði ofbeldisfull viðbrögð landnemanna húliganisma eða bulluhátt. Ríkisstjórn hans fundaði í morgun og staðfesti að klára skyldi rýmingu byggðanna 25 - 21 á Gasaströndinni og fjögurra á Vesturbakkanum - sem allra fyrst. Samkvæmt samkomulagi ísraelskra stjórnvalda og heimastjórnar Palestínu verða öll húsin í byggðunum rifin og hrúgurnar skildar eftir. Palestinumönnum er svo frjálst að nýta byggingarefnið eða hreinsa það burt. En þótt hraðar hafi gengið að fá mannfólkið til að yfirgefa svæðin þá hefur herinn átt í nokkrum vandræðum með aðra íbúa. Fulltrúar dýraverndunarsamtakanna Hakol Chai hafa þrætt byggðirnar undanfarna daga og safnað saman gæludýrum sem hafa orðið eftir í látunum. Þeim verður öllum komið fyrir á öruggum stað þar til heimili finnast handa þeim.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira