Ginntar hingað á fölskum forsendum 15. ágúst 2005 00:01 "
Mér var tjáð að ég hefði dágóðan tíma til að skoða landið og fengi minn frítíma en þegar til kom stóð ekki neitt sem hún sagði," segir Sabrina Maurus, ein hinna þýsku stúlkna sem hingað voru fengnar til vinnu að tilstuðlan þýskra eigenda Cafe Margret á Breiðdalsvík fyrr í sumar. Hún er nú farin af landi brott peningalaus og allslaus eftir rúmlega mánaðarvist sem allar stúlkurnar eru sammála um að hafi verið ómannleg. Stúlkurnar svöruðu allar auglýsingum í þýskum dagblöðum þar sem óskað var eftir starfsfólki til Íslands. Áttu launin að vera 20 þúsund krónur á mánuði, frítt húsnæði og matur gegn sex til tíu tíma vinnu á dag. Þegar til kom urðu fimm stúlkur að deila 20 fermetra bjálkakofa, vinnudagurinn varð allt að fjórtán tímum dag hvern og þeim var gert að vera kyrrar á staðnum í frítíma sínum ef vera skyldi að kaffihúsið fylltist af viðskiptavinum. Það var fyrir heppni að nokkrir íbúar bæjarins fengu vitneskju um aðstöðu stúlknanna og höfðu strax samband við stéttarfélagið Vökul sem gerði athugasemdir í júní. Lofuðu rekstraraðilar, hjónin Horst Muller og Margret Bekemeier, bót og betrun og sögðust ekki hafa vitað um íslensk lög og reglur. Í kjölfarið hættu þær fjórar stúlkur sem komu þar til starfa í vor störfum en tveimur vikum síðar voru aðrar fjórar komnar í staðinn á sömu kjörum. Eru þær allar hættar nú og eru þrjár þeirra farnar til síns heima. Eiga þær enn útistandandi laun en sökum þess að þær hættu neita eigendurnir að greiða. Er stéttarfélagið að skoða mál þeirra í dag. Í síðustu viku þegar Fréttablaðið náði tali af Margret Bekemeier, öðrum eigandanum, viðurkenndi hún að fjórar stúlkur hefði unnið hjá henni fyrr í sumar en því harðneitar hún í dag. Segir hún engar þýskar stúlkur hafa unnið hjá sér í sumar aðra en frænku sína sem enn vinni hjá sér.
Fréttir Innlent Mest lesið Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent Telur Trump gera mistök Erlent Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Innlent Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin Innlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent Fleiri fréttir Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Annasamasti dagur á bráðamóttöku í lækna minnum Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Gríðarleg fjölgun hótana og dæmi um að setið sé fyrir lögreglumönnum Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sjá meira