Innlent

Steinhús úr Eyjagosi grafið upp

Fyrsta áfanga að Pompei norðursins er lokið og hefur verið grafið ofan af hlöðnu steinhúsi sem stóð við Suðurveg 25 í Vestmannaeyjum. Húsið hafði hvílt undir öskufargi síðan í eldgosinu 1973. Stefnt er að því að fjórtán hús sem urðu undir í gosinu verði grafin upp hvert á fætur öðru með handaflinu einu saman. Eitt þeirra hefur verið endurheimt úr jörðu. Jóhann Freyr Ragnarsson verkstjóri segir að í ljós hafi komið að húsið var hlaðið úr holsteini. Þakplatan sé hins vegar steypt og hún sé fallin niður en sjá megi inn um glugga hvernig ástandið í stofunni sé. Jóhann segir aðspurður að húsið standi rétt þannig að það hafi ekki færst neitt úr stað. Hins vegar hafi niðurfallsrör, sem hafi verið úr plasti, bráðnað vegna hitans. Þá sé sjónvarpsloftnetið í ágætis ásigkomulagi. Reynt er að hrófla við sem minnstu við uppgröftinn og gert er ráð fyrir að hann taki ár ef ekki áratugi. Nú þegar má þó sjá og snerta það sem vikurinn skilar eins og gríðarmikla hraunbombu. Jóhann telur að hún hafi komið út 200 metra hæð, hún hafi fundist norðvestan við húsið. Bomban sé um 50 kíló að þyngd og það hefði ekki þurft að spyrja að því ef einhver hefði fengið hana í sig. Þegar húsin fjórtán hafa verið endurheimt úr faðmi sótsvartar öskunnar á að koma á fót sýningarsvæði um liðna tíma þar sem glögglega má sjá hvílíkir firnakraftar voru á ferðinni í Vestmannaeyjum árið 1973.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×