Gáttaður á áhuga Íslendinga 28. júlí 2005 00:01 "
Ég er alveg gáttaður á þessum áhuga Íslendinga á verkum mínum," segir færeyski myndlistarmaðurinn Hilmar Hoøgaard en hann hélt myndlistarsýningu í Eden í Hveragerði í síðasta mánuði. Það er kannski ekki nema von að Hilmar sé gáttaður því hann mætti hingað til lands með þrjátíu og níu myndir en hafði aðeins með sér tæpan helming til baka en hinn helmingurinn prýðir stofur íslenskra myndlistarunnenda sem tóku HIlmari svo sannarlega vel. Hann var einnig upp með sér vegna peningaupphæðanna hér og þóttist hafa himin höndum tekið þegar verk hans seldust á tugi þúsunda króna en þó dróst aðeins úr kæti hans þegar honum varð ljóst að mikill munur er á íslensku og dönsku krónunni. En þó er hann ekki mikill efnishyggjumaður. "Ég kýs frekar að hafa gaman af lífinu," segir hann. "Þess vegna er ég til dæmis að vinna á sambýli fyrir fatlaða sem er mjög gefandi og skemmtilegt starf en ég lærði rafmagnsverkfræði en mér fannst ekkert skemmtilegt að eiga við það svo ég lít ekki við því lengur." Hilmar er frá bænum Toftum sem er vinabær Hveragerðis og var sýning hans liður í menningarlegu samstarfi bæjanna. Hann dvaldi í Hveragerði í hálfan mánuð eða á meðan á sýningunni stóð og ber hann Íslendingum vel söguna. "Þið eruð góðir grannar og margir hafa sagt mér að myndirnar mínar minni um margt á Ísland. Til dæmis er ég heillaður af sjónum og fiskimennsku eins og sést á verkum mínum og þetta leggst vel í Íslendingana," segir hann upp með sér. En verk Hilmars leggjast ekki aðeins vel í Íslendinga því undanfarin ár hefur orðstír hans sem myndlistarmanns farið vaxandi í heimalandi hans. "Þótt ég hafi alltaf málað var það ekki fyrr en í hittiðfyrra sem ég fór að gera þetta af einhverri alvöru og smátt og smátt er ég að "meika" það í Færeyjum. Gefðu mér tvö ár í viðbót og þá verð ég orðinn verulega frægur," segir Hilmar og hlær.
Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Sjá meira