Vinnueftirlitið fríar sig ábyrgð 15. júlí 2005 00:01
Vinnueftirlit ríkisins segist ekki geta staðið yfir tívolíinu við Smáralind alla daga til að framfylgja því að öryggisreglum sé fylgt. Börn eru þar á ábyrgð foreldra sinna. Vinnueftirlitinu og sjónvarvottum að atviki sem varð í Tívolíinu í fyrradag virðist ekki bera saman. Þrír sjónarvottar sem fréttastofa hefur rætt við fullyrða að einn vagninn í einu tækjanna hafi losnað frá arminum og slegist út utan í aðra vagna sem í var fólk. Georg Árnason hjá Vinnueftirlitinu dregur hins vegar í efa að eitthvað hafi brotnað, segir dekk sem styður við vagninn hafa sprungið og finnst ekki skrítið að fólki hafi orðið hverft við þegar vagninn lamdist við álpallana. Hann minnir líka á að fjórir póstar halda vagninum. Þá segja talsmenn tívolísins að leiktækið snúist með hálfum hraða, fari um 10 kílómetra á klukkustund, ef enginn er við stjórnvölinn. Því geti það sem sjónarvottar halda fram ekki staðist en þeir segja tækið hafa farið tvo og hálfan hring með lausan vagninn, því enginn hafi verið í stjórnklefanum. Einn þeirra, sem starfað hefur í Tívolíi í Bandaríkjunum, gerði einnig athugasemdir við stoðir sem settar eru undir tækin, eins konar kubba, en Vinnueftirlitið fullyrðir að þær uppfylli öryggiskröfur. Kubbarnir geti ekki dottið nema það komi ytri kraftur, t.d. ef bifreið yrði ekið á þá sem ætti ekki að geta gerst. Öryggiskeðjur voru ekki festar við sum tækin, eða voru einfaldlega ekki til staðar, þegar fréttastofan kom við í Tívolíinu. Georg segir að ítrekað hafi verið við starfsmenn að þær væru notaðar en meira gæti Vinnueftirlitið ekki gert. Sömu viðbrögð fengust hjá Heilbrigðiseftirliti Kópavogs þegar innt var eftir því hvort eðlilegt væri að rafgeymar og rafmagnstöflur stæðu óvarðar. Eftirlitið gæti ekki fylgst með starfsemi tívolísins dag frá degi, en myndu bregðast við ef ábendingar bærust. Og hann minnir á að foreldrar eigi að passa börnin sín.
Fréttir Innlent Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira