Niðurskurður hjá RÚV 5. júlí 2005 00:01
Um síðustu mánaðamót var ákveðið að skera niður kostnað hjá Ríkisútvarpinu til að ná jafnvægi í rekstri stofnunarinnar á árinu. Um er að ræða flatan tveggja prósenta niðurskurð sem leggst jafnt á bæði útvarp og sjónvarp og á að spara fimmtíu milljónir króna. Búist er við að framleiðslu einhverra þátta í bæði útvarpi og sjónvarpi verði hætt. Á Rás eitt er mjög sennilegt að Auðlindin verði slegin af og líklegt er að fréttaskýringarþátturinn Í brennidepli detti upp fyrir í sjónvarpinu. Þá er búist við að nokkrir tónlistarþættir á Rás tvö leggi upp laupana, einkum kvöldþættir. Engar endanlegar ákvarðanir hafa þó verið teknar. Þá má geta þess að ákveðið var að afnema þrettán þúsund króna líkamsræktarstyrki starfsmanna, en í fyrradag var sú ákvörðun dregin til baka vegna mótmæla starfsmanna. Nokkur óvissa hefur ríkt hjá starfsmönnum vegna þessa, en ekki er enn búið að kynna niðurskurðinn formlega fyrir þeim. "Auðvitað hafa menn áhyggjur af uppsögnum," segir Jóhanna Margrét Einarsdóttir, formaður starfsmannasamtaka Ríkisútvarpsins. "Hér er margt fólk með skammtímasamninga sem hægt er að láta renna út þannig að líklega kæmi ekki til uppsagna fastráðinna starfsmanna, en starfsmönnum gæti fækkað og vinnuálag á fastráðna starfsmenn gæti aukist í kjölfarið." Jóhanna segir starfsmenn einnig orðna langþreytta á hinu sífellda óvissuástandi. Guðmundur Gylfi Guðmundsson, framkvæmdastjóri fjármáladeildar Ríkisútvarpsins, staðfestir að ákveðið hafi verið að grípa til niðurskurðar í rekstrinum, en vill ekki tjá sig frekar um það í hverju niðurskurðurinn verður fólginn. "Það hefur orðið mikill kostnaðarauki á árinu," segir Guðmundur. "Við höfum ekki fengið svar við óskum um hækkun afnotagjalda og þá er ekki annað að gera en að fara í þessar aðgerðir."
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Erlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira