Íbúðalánasjóður lánar stofnunum 4. júlí 2005 00:01
Íbúðalánasjóður hefur lánað Sparisjóðunum og öðrum lánastofnunum rúma áttatíu milljarða króna, til að endurlána viðskiptavinum sínum. Lán Íbúðalánasjóðs eru ríkistryggð og upphæðin nemur allt að því helmingi allra skulda ríkissjóðs. Samkvæmt heimildum fréttastofu er umdeilt að eitthundrað milljarða lán Íbúðalánasjóðs til Sparisjóðanna og annarra lánastofnana eigi sér lagastoð. Guðmundur Bjarnason er þó ekki í vafa og segir að þær eigi sér lagastoð í áhættustýringu bankansGuðmundur neitar því að lánin séu nær eingöngu til SPRON og annarra sparisjóða, þótt þeir hafi riðið á vaðið. Fréttastofan hefur hinsvegar heimidir fyrir því að sparisjóðirnir séu langstærstir. Hann sagði að Íbúðalánasjóður hefði verið í viðræðlum við nær allar lánastofnanir en vildi ekki upplýsa hvernig upphæðin skiptist milli bankannaSamkvæmt heimildum fréttastofu eru lán sjóðsins til bankanna þó á föstum vöxtum en bankinn lánar áfram á breytilegum vöxtum. Einn heimildarmaður fréttastofu sagði nær öruggt að sjóðurinn tapaði á lánunum. Sjóðurinn hefur getað nýtt það fé sem kemur inn til að greiða upp gömlu skuldabréfin sem hafa útdráttarheimild eða tuttugu prósent af útistandandi bréfum. Þá hefur sjóðurinn getað greitt upp gömul lán. En meira þarf til og margir spyrja sig hvort sjóðurinn riði í raun til falls. Það bera stjórnendur hans þó af sér.. Húsnæðislán bankanna eru einnig miklu hærri en viðskiptavinum sjóðsins standa til boða og hafa einnig sýnt sig að standa straum af ýmissri annarri neyslu húseiganda og spurning hvort það sé hlutverk ríkisins að ábyrgjast þær. Gömlu skuldabréfin sem Íbúðalánasjóður tók til að fjármagna útlán sín voru tryggð gegn uppgreiðslum með svokallaðri útdráttarheimild en það dró úr áhuga erlenda fjárfesta. Samkvæmt ráðleggingum frá Deutsche bank voru gefin út ný skuldabréf fyrir um áttatíu prósentum allra útistandandi skuldabréfa sjóðsins sem voru óvarin gegn uppgreiðslum. Í framhaldi af þessu reið KB banki á vaðið með ný ódýr húsnæðislán í ágúst í fyrra.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Erlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira