Langt í þingfestingu í Baugsmálinu 4. júlí 2005 00:01
Einn og hálfur mánuður líður frá því að sakborningum í Baugsmálinu eru birtar ákærur og málið er þingfest. Ríkislögreglustjóri og yfirmaður efnahagsbrotadeildar eru báðir komnir í frí og er það líkleg skýring á þessum langa tíma. Þegar Sindri Sindrason spurði dómsmálaráðherra hvort þetta teldust ásættanleg vinnubrögð lauk símtalinu skyndilega. Jóhannesi Jónssyni, börnum hans Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs og systur hans Kristínu Jóhannesdóttur, Tryggva Jónssyni fyrrverandi forstjóra fyrirtækisins, Stefáni Hilmarssyni og Önnu Þórðardóttur endurskoðendum var birt ákæra þann fyrsta júlí. Málið verður þó ekki þingfest fyrr en sautjánda ágúst og verða ákærur að öllum líkindum ekki gerðar opinberar fyrr en þá, sem þykir ansi langur tími. Ástæðuna telja menn líklega vera að Haraldur Jóhannesson, ríkislögreglustjóri og Jón HB Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar, eru í sumarleyfum og virðist sem þeim þyki í lagi að setja málið á bið í svo langan tíma vegna þess. Þegar fréttastofan hafði samband við Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra um hvort þetta væru ásættanleg vinnubrögð, sagði Björn að hann hefði ekki tök á að ræða málið við fréttamann og að fréttamaður hefði ekki átt aðhringja í GSM síma hans. Síðan lagði hann á. Fréttastofa hefur alls staðar komið að lokuðum dyrum þegar leitað hefur verið svara, einnig innan herbúða Baugsmanna og hafa ýmsir velt því fyrir sér hvers vegna málið er svona mikið leyndarmál, ef allir eru saklausir. Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs, sagði þó háskalegt að í jafn umfangsmiklu máli, fari sami maður með stjórn rannsóknar og taki síðan ákvörðun um hvort ákæra skuli eins og yfirmaður efnahagsbrotadeildar gerir í þessu máli. Gestur vildi þó ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu. Endurskoðunarfyrirtækið KPMG hefur birt tilkynningu þar sem segir að starfsmaður fyrirtækisins, Anna Þórðardóttir, hafi sinnti starfsskyldum í samræmi við lög en að fyrirtækið tjái sig ekki frekar um málið á meðan það er til meðferðar dómstóla.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Erlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira