Útsölur fara hægt af stað 30. júní 2005 00:01
Sumarútsölurnar eru nú víða hafnar í höfuðborginni og víðar og eru kaupmenn almennt sammála um að hægt sé að gera svipuð kaup á þeim og í fyrra. Afslættir eru algengir frá 30 - 40 prósentum og fara hækkandi eftir því sem á líður. Mörgum finnst þó nóg um að útsölutíminn skuli vera orðinn heill mánuður og telja það útskýra að hluta hversu útsölur fara rólega af stað. Meðal þeirra verslana þar sem útsölur eru hafnar og Fréttablaðið heimsótti í gær voru Hagkaup, BT, Húsgagnahöllin, Esprit, Accessorize og Útilíf. Var greinilegt að margir á viðkomandi stöðum höfðu eingöngu komið til að gera góð kaup á útsölunum en flestir kaupmenn voru þó á því að útsölurnar færu rólega af stað. Tóku nokkrir viðskiptavinir undir það og sögðust ekki hafa gert sér grein fyrir að útsölurnar væru byrjaðar fyrr en komið var á staðinn. Ekki var meira af fólki í Kringlunni þennan fyrsta dag útsölunnar en venja er en flestar verslanir þar auglýsa góðan afslátt á vörum sínum. "Þetta er fyrsti dagurinn og þetta fer rólega af stað," sagði Ingibergur Jóhannsson, verslunarstjóri hjá Útilífi í Kringlunni. "Þetta er stór ferðahelgi og enginn hefur fengið útborgað enn sem komið er. Það verður forvitnilegt að sjá hvernig gengur um helgina en mig grunar að mörgum finnist þessi langi útsölutími verið kominn út í öfgar. Útsalan er allan júlímánuð og fólk hinkrar við enda algengt að verð lækki þegar líða fer á útsölurnar." Rósa Guðjónsdóttir, verslunarstjóri í Esprit, tók í sama streng. "Þetta byrjar með ágætum hjá mér en það eru færri á ferð en ég hefði kannski búist við miðað við útsölur hér sem almennt eru vel sóttar. En þetta er fyrsti dagurinn og kannski ekki mark á takandi ennþá. Mér sýnist verð og afslættir nú vera með svipuðu móti og á síðasta ári og þær útsölur voru almennt afar góðar þannig að þetta lofar góðu fyrir viðskiptavininn."
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Erlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira