Ker ekki að gangast undan ábyrgð 30. júní 2005 00:01
Lögmaður Kers hf. segir félagið ekki vera að gangast undan ábyrgð á samráði olíufélaganna með máli félagsins á hendur ríkinu sem þingfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Olís og Skeljungur stefna einnig að því að kæra úrskurð samkeppnisyfirvalda fyrir lok júlímánaðar. Eignarhaldsfélagið Ker, sem á olíufélagið Essó, hefur stefnt ríkinu og samkeppnisyfirvöldum til að fá úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá því í janúar, felldan úr gildi. Þar var félaginu gert skylt að greiða tæpar fimm hundruð milljónir króna í sektir fyrir ólöglegt verðsamráð með olíufélögunum Olís og Skeljungi, sem einnig voru sektuð. Til vara hefur Ker krafist þess að sektarákvæði ákvörðunarinnar verði fellt úr gildi eða að sektargreiðslur verði lækkaðar. Árni Ármann Árnason, lögfræðingur Skeljungs, sagði félagið ætla að nýta sér þann frest sem það hefur til að kæra en hann rennur út í lok júlí. Eyvindur Sólnes, lögfræðingur Olís, sagði að búast mætti við ákæru af þeirra hálfu fyrir sama tíma og sagði hann kröfugerðina væntanlega verða þá sömu og hjá Keri, það er að sektargreiðslur verði lækkaðar eða felldar niður. Félögin stefna öll að því að reyna að fá úrskurði áfrýjunarnefndar hnekkt þrátt fyrir að hafa beðið viðskiptavini sína afsökunar á verðsamráðinu í heilsíðuauglýsingum dagblaða eftir að Samkeppnisyfirvöld sektuðu þau. Kristinn Hallgrímsson lögfræðingur Kers segir: „Það er stór misskilningur ef menn halda að það felist einhver viðhorfsbreyting í því að höfða þetta mál samanborið við afsökunarbeiðnina sem send var út í vetur. Þessi stefna og þetta mál er þannig úr garði gert að það er í rauninni gengist við því samráði sem átti sér stað og það eru engin mótmæli við því. HIns vegar er sú krafa gerð í þessu máli er að olíufélög eins og áðrir fái rétláta málsmeðpferð og það sem við bendum í í þessu máli að það er ekki rétt reiknað. Við höfum fengið óháða endurskoðendur til þess að fara yfir þetta mál og þá kemur í ljós að það eru vitlausir útreikningar um meintar fjárhagslegan ávinning.“ Kristinn segir fleiri ástæður af þessu tagi liggja að baki kærunni en að félagið taki því sem verður. Ef m álið fer í þann farveg að sektir verði lækkaðar og eins ef málið verður staðfest.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira