Heimsókn Taívana ergir Kínverja 30. júní 2005 00:01
Kínverjar eru æfir vegna komu utanríkisráðherra Taívans hingað til lands í dag og hafa í hótunum. Kínverska sendiráðið leitar allra leiða til að koma í veg fyrir heimsóknina. Sendinefnd frá Taívan með utanríkisráðherrann Dr. Tan Sun Chen í broddi fylkingar er væntanleg hingað til lands í dag. Farið hefur verið með heimsóknina eins og mannsmorð og hún er svo óformleg að jaðrar við leyndarmáli. Ástæðan er óttinn við reiði Kínverja, sem líta á Taívan sem uppreisnarhérað og viðurkenna ekki sjálfstæði landsins frekar en flestar aðrar þjóðir. Þeir taka því ekki vel þegar heimsóknir af þessu tagi eiga sér stað - sama með hvaða formerkjum. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar hefur sendiráðið gert athugasemdir við íslenska utanríkisráðuneytið og meðal annars hótað því að viðskiptasamningum verði rift, jafnvel að reynt verði að spilla fyrir Íslendingum á alþjóðavettvangi. Fát kom á talsmann sendiskrifstofu Taívans í Kaupmannahöfn þegar fréttastofan hafði samband við hann og samkvæmt upplýsingum frá íslenska utanríkisráðuneytinu er heimsóknin ekki opinber, ekki er gert ráð fyrir því að ráðherrann hitti neina íslenska ráðamenn og litið er á sendinefndina sem hóp ferðamanna á eigin vegum. Allt er fólkið hér á landi með vegabréfsáritun sem ferðamenn. Það dugir þó ekki til að slá á reiði Kínverja sem munu hafa reynt hvað þeir gátu til að koma í veg fyrir heimsóknina. Þeir telja enda að það skipti engu að um ferðamannaheimsókn sé að ræða, heldur séu Taívan-búarnir hér til að blanda Íslandi í pólitískt áróðusstríð og að einskonar viðurkenning á stöðu Taívans felist í því að veita þeim sáritun í taívænsk vegabréf. Spenna mun vera innan utanríkisþjónustunnar vegna málsins og íslenskir kaupsýslumenn, sem gert hafa samninga við Kína nýverið, eru sagðir vita af óánægju Kínverjanna. Utanríkisráðherra Taívans hefur hins vegar á undanförnum misserum heimsótt meðal annars Tékkland og Frakkland án þess að fregnir hafi borist af neinum afleiðingum, og hann kemur hingað til lands frá Noregi, þar sem hann mun hafa átt fundi af ýmsu tagi.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira