Hans Markús kærir biskup 29. júní 2005 00:01 "
Strax í kjölfar niðurstöðu áfrýjunarnefndar sem birtist stefndi ég biskupi, fyrir hönd Þjóðkirkjunnar, og öðrum málsaðilum fyrir Héraðsdóm Reykjaness til að krefjast ógildingar þess að Hans Markúsi skuli gert að færa sig til í starfi," segir Sveinn Andri Sveinsson lögmaður Hans Markúsar Hafsteinssonar sóknarprests í Garðasókn. "Vald nefndarinnar náði ekki til þess að færa hann til í starfi. Sem sóknarprestur er hann embættismaður og um hann gilda lög um réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna. Áfrýjunarnefndin vildi meina að lög um Þjóðkirkjuna vikju til hliðar lögum um réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna. Það er í raun verið að segja að þessar nefndir geti vikið embættismönnum úr starfi þótt þeir séu ráðnir af ráðherra. Í raun er þetta mikið hagsmunamál fyrir alla prestastéttina," segir Sveinn Andri. Í úrskurði áfrýjunarnefndar Þjóðkirkjunnar er ákvörðun úrskurðarnefndar Þjóðkirkjunnar um að færa Hans Markús til í starfi ekki breytt en það var krafa hans. Hins vegar er orðið við þeirri kröfu Hans að mælast til þess að veita Nönnu Guðrúnu Zoëga djákna, Friðrik J. Hjartar sóknarpresti, Matthíasi G. Péturssyni sóknarnefndarformanni og Arthuri K. Farestveit varaformanni sóknarnefndar áminningu. Deilurnar í Garðasókn hafa staðið að sögn Nönnu Guðrúnar síðan árið 1997 og hafa alla tíð snúist um samstarfserfiðleika. Samstarfsmenn Hans Markúsar halda því fram að hann hafi hrakið fólk úr starfi og þar á meðal fyrrum sóknarprest, Bjarna Þór Bjarnason. Þessu hefur Hans Markús vísað á bug. Biskup hefur reynt að sætta málsaðila og ýmislegt annað hefur verið reynt, til dæmis að fá sálfræðing til að reyna að sætta málsaðila. Þegar haft var samband við málsaðila við vinnslu þessarar fréttar vildu hvorki Nanna Guðrún, Friðrik né Arthur segja mikið um málið á þessu stigi. Hvorki náðist í Matthías né Hans Markús þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Ljóst er að úrskurður dómstóla í málinu er fordæmisgefandi um vald úrskurðar- og áfrýjunarnefndar Þjóðkirkjunnar.
Fréttir Innlent Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Sjá meira