Tökum þátt í 27 verkefnum 29. júní 2005 00:01
Ísland er þátttakandi í fjórum af fimm verkefnum sem stjórn Norðurslóðaáætlunar Evrópusambandsins samþykkti að styrkja á fundi sínum fyrir skömmu. Heildarúthlutun til verkefnanna fimm er 381 milljón króna, en verkefnin fjögur sem Ísland tekur þátt í nemur rúmum 272 milljónum króna. Að meðtöldum verkefnunum sem samþykkt voru nú tekur Ísland þátt í 27 verkefnum á vegum Norðurslóðaáætlunarinnar. Ísland leiðir eitt verkefnanna fjögurra, en það snýst um sjúkraflutninga og -þjónustu í dreifðum byggðum, en þátttakendur hér eru FSA Háskólasjúkrahús á Akureyri og Sjúkraflutningaskólinn. Verkefnið fær fram til ársins 2007 úthlutað frá Norðurslóðaáætluninni 54,5 milljónum króna. "Markmið verkefnisins er að setja fram tillögur um hvernig best verði staðið að skipulagi sjúkraflutninga í dreifbýli. Verkefnið tengir saman fólk með sérhæfða þekkingu og reynslu í sjúkraflutningum og skipulagi þeirra í fámennum og dreifbýlum svæðum, með það að markmiði að greina skipulagið, þekkingu og hæfni þeirra sem stunda sjúkraflutninga á þessum svæðum," segir í lýsingu verkefnisins. Hildigunnur Svavarsdóttir, skólastjóri Sjúkraflutningaskólans, segir enn verið að tryggja lokafjármögnun verkefnisins, því Norðurslóðaáætlunin styrki verk ekki nema að hámarki til 60 prósenta. "Verkefnið er stórt og mikið og væri ákjósanlegt fyrir landið og sjúkraflutninga hér að vera með," segir hún og kveðst mjög ánægð með þá viðurkenningu sem verkefnið hafi fengið með úthlutun Norðurslóðaáætlunarinnar. Auk Íslands, taka nyrðri byggðir í Svíþjóð þátt og svo Suðureyjar Skotlands, auk þess sem fleiri gætu bæst við. "Þetta er tveggja og hálfs árs verkefni og við sjáum fram á að þetta skili okkur töluverðu varðandi skipulag á sjúkraflutningum og hvernig nýta má betur mannskap." Hin verkefnin þrjú sem fengu vilyrði um styrk eru af ýmsum toga. Eitt snýst um öryggi á sjó, en að því kemur Landhelgisgæslan og Háskóli Íslands, annað er framhaldsverkefni um atvinnuráðgjöf, sem Atvinnuþróunarsjóður Suðurlands kemur að og svo er verkefnið Spatial North sem snýst um áætlanagerð og að kemur bæði Skipulags- og Byggðastofnun.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira