Verðhækkun á díselolíu 29. júní 2005 00:01
Menn eru farnir að hamstra dísilolíu. Næsta föstudag verður lítrinn af dísilolíu nánast jafndýr og bensínlítrinn. Einstaklingum er leyfilegt að kaupa 5000 lítra af olíu án þess að borga af henni þungaskatt og hafa margir nýtt sér það. Þungaskattur verður aflagður á föstudaginn næsta og olíugjald tekið upp í staðinn. Með þessu er gjaldtaka af dísilbifreiðum og bensínbifreiðum samræmd og breytist þá gjaldtakan frá því að vera gjald á ekna kílómetra yfir í gjald á það eldsneytismagn sem notað er. Þá verður dísellítrinn nánast jafndýr og bensínlítrinn. Fram að þeim tíma má þó kaupa 5000 lítra af dísilolíu á hverja kennitölu án þess að greiða af henni skatt. Hörður Gunnarsson framkvæmdastjóri Olíudreifingar segir þá sem eiga eldsneyti umfram 5000 lítra þurfa að gefa upp umframmagnið. Til að geta keypt þetta magn af olíu þarf ákveðna geyma sem gerðir eru fyrir olíuna. Fram til þessa dags eru um 10 þúsund geymar í umferð í landinu í eigu einstaklinga og fyrirtækja. Flestir þeirra taka um 1-2000 lítra en sumir taka allt upp í 14 þúsund lítra. Aðspurður segir Hörður að það sé ekki mikið um að menn séu með þetta í heimahúsum og segir menn yfirleitt ganga mjög vel frá þessau. Notendur díselolíu gætu því sparað sér dágóða summu með því að fylla 5000 lítra kvótann fyrir föstudaginn. Hörður segir fólk geta verið að kaupa svona á bilinu 250 þúnund og sparað sér annað eins í þungaskatti. Og þessi fimm þúsund lítrar duga að sögn Harðar, sé miðað við meðalakstur í eitt-tvö ár. Hörður segir að júní og júli mánuður séu venjulega 80% stærri en aðrir mánuðir í dreifingu. En þessi júnimáuður verður ennþá stærri og dreifikerfið er nánast sprungið og unnið er dag og nótt til þess að ná endum saman fyrir 1. júlí.
Fréttir Innlent Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Fleiri fréttir „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Sjá meira