Skuldahali fellur á ríkið 28. júní 2005 00:01
Ríkissjóður greiðir upp tugmilljóna skuld Tækniháskóla Íslands þegar hann sameinast Háskólanum í Reykjavík um næstu mánaðamót. Þetta bætist við samtals 225 milljóna króna framlag ríkisins til skólans síðustu þrjú ár sem ætlað hefur verið til að greiða niður skuldir hans. "Árið 2002, þegar Tækniskólanum var breytt í tækniháskóla var halli skólans hátt í þrjú hundruð milljónir króna. Tækniháskólinn fékk úthlutað 205 milljóna fjárheimild í fjáraukalögum árið 2002 til að greiða niður hluta skuldarinnar," segir Stefanía Katrín Karlsdóttir, fráfarandi rektor Tækniháskóla Íslands, um skuldahala Tækniskólans sem Tækniháskólinn tók á sig en var greiddur niður að mestum hluta af ríkinu. Auk þess fékk skólinn 19,7 milljónir 2004 til að greiða hluta biðlaunakostnaðar fyrrum starfsmanna Tækniskólans. Samkvæmt upplýsingum Stefaníu voru skuldbindingar Tækniskólans sem Tækniháskólinn tók yfir það miklar að uppsafnaður halli Tækniháskólans var 127 milljónir í árslok 2003 þrátt fyrir fjárheimildir frá ríkinu. Stefanía sagði þetta gamlar syndir sem Tækniháskólinn hefði fengið í vöggugjöf en hún vildi ekki tjá sig um ástæður halla Tækniskólans. "Verið er að leggja niður ríkisstofnun og því er gert ráð fyrir að ríkisjóður greiði útistandandi skuldir hennar. Það er eðlilegt að einkaaðili taki ekki yfir þær skuldir," segir Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri í menntamálaráðuneytinu, um niðurgreiðslu skulda skólans. Í umsögn með lagafrumvarpinu um afnám Tækniháskóla Íslands sem lagt var fyrir Alþingi 2. desember 2004 var áætlað að skuldir Tækniháskóla Íslands yrðu á bilinu 110 til 125 milljónir króna um mitt ár 2005 og að þessar skuldir færðust ekki yfir á hinn nýja skóla með sameiningunni. Stefanía segir þessar skuldir hafa lækkað um tugi milljóna.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira