Ríkið gekk á bak orða sinna 28. júní 2005 00:01
Komuverslun fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli hefur verið stækkuð um meira en helming, frá 460 fermetrum upp í rúma þúsund fermetra. Samtökum verslunar og þjónustu þykir utanríkisráðuneytið hafa gengið á bak orða sinna með því að samþykkja að stækka rekstur sem er í samkeppni við einkaaðila. Sigurður Jónsson framkvæmdastjóri samtakanna segir alla stjórnmálafloka hafa verið spurða að því fyrir síðustu kosningar hvort ríkið ætli sér að vera áfram í smásölusamkeppnisrekstri. Allir flokkar svöruðu því til að draga bæri saman rekstur komuverslunarinnar. Hann segir það skjóta skökku við að ríkisfyrirtæki sé í samkeppni um sölu á snyrtivörum, sælgæti, raftækjum og öðru því sem kaupa má í fríhöfninni. Aðspurður hvort það sé ekki hagur neytenda að úrval og aðgengi sé gott í fríhöfninni segir Sigurður að ef svo væri hlyti þá líka að vera hagur neytenda ef ríkið sæi þá bara um það sjálft að reka almennar neysluvöruverslanir, því sé um tvískinnung að ræða. Hann segir það skoðun SVÞ að ríkið eigi að einskorða sig við rekstur sem er þess eðlis að hann sé ekki í beinni samkeppni við einkaaðila. Sturla Eðvarsson framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar ehf. blæs á gagnrýni Samtaka verslunar og þjónustu. "Við erum fyrst og fremst í samkeppni við aðrar brottfararverslanir á erlendum flugvöllum", segir Sturla. Hann segir það hafa verið nauðsynlegt að stækka komuverslunina enda hafi svo verið komið að á álagstímum hafi fólk hreinlega ekki komist inn í verslunina. Hann segir Fríhöfnina aldrei hafa verið í samkeppni við innlendar verslanir og aldrei hafa auglýst á innanlandsmarkaði. Aðspurður um auglýsingu sem birtist fyrir jólin þar sem iPod hljómflutningstæki voru auglýst á lægra verði í Fríhöfninni segir hann þá auglýsingu ekki hafa verið frá Fríhöfninni komna.
Fréttir Innlent Mest lesið Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Fleiri fréttir Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið Sjá meira